Frestar mati á framfylgd ábendingar um tvö ár

Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að fresta um tvö ár mati á framfylgd ábendingar sinnar frá árinu 2010 um innkaupamál skrifstofu Alþingis. [meira]
Hefur brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum Ríkisendurskoðunar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010 um framkvæmd búvörusamninga. [meira]
Stofnanir fyrir fólk með skerta færni fari undir sama þak

Ríkisendurskoðun hvetur stjórnvöld til að kanna mögulegan ávinning þess að flytja undir sama þak nokkrar stofnanir sem sinna þjónustu við fólk með skerta færni. [meira]
Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar fyrir árið 2012

Í ársskýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir árið 2012 er gerð grein fyrir starfsemi stofnunarinnar á síðasta ári, þ.m.t. tekjum og gjöldum, mannauði, verkefnum sem lokið var og árangursmælingum. Í formála að skýrslunni ræðir ríkisendurskoðandi m.a. fjárhagsstöðu stofnunarinnar og alþjóðlega jafningjaúttekt á vinnubrögðum hennar sem unnið er að um þessar mundir. [meira]
Athugasemdir gerðar við háar launagreiðslur til yfirmanns hjá Þjóðskrá

Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignaskrá Íslands) hefur með formlegum hætti brugðist við ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010. Ábendingarnar vörðuðu verktakagreiðslur til einkahlutafélags sem falið var að stýra tölvudeild Fasteignaskrár. Að mati Ríkisendurskoðunar bar þetta fyrirkomulag ýmis merki svokallaðrar gerviverktöku. Eigandi félagsins var sama ár ráðinn yfirmaður tölvudeildar Fasteignaskrár. Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við háar launagreiðslur til hans á árunum 2011 ̶ 2012. [meira]
Vel var staðið að uppfærslunni á Orra árið 2010

Vel var staðið að uppfærslu á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) árið 2010. Hún gekk þó ekki alveg áfallalaust fyrir sig. Ríkisendurskoðun hvetur Fjársýslu ríkisins til að draga lærdóm af því sem úrskeiðis fór. [meira]
Eftirfylgni með ábendingum um kaup Fasteigna ríkissjóðs á málningarvinnu

Fasteignir ríkissjóðs hafa brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingu Ríkisendurskoðunar frá 2010 um að gera þyrfti verðsamanburð við kaup á málningarvinnu á Norðausturlandi. Þá hafa Ríkiskaup brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingu stofnunarinnar um að gera þyrfti rammasamning um kaup á verktakaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. [meira]
Stjórnvöld meti hvort enn sé þörf fyrir SRA

Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi að meta hvort enn sé þörf fyrir Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna (SRA) og mögulegan ávinning af því að flytja verkefni hennar annað. [meira]
Framlög til æskulýðsmála

Ríkisendurskoðun hefur birt úttekt á framlögum ríkisins til æskulýðsmála sem unnin var að beiðni forsætisnefndar Alþingis. Í henni kemur fram að ríkið hafi um langt árabil veitt fjárframlög til æskulýðsstarfsemi af ýmsu tagi. Framlög til slíkra mála námu samtals 1,7 ma.kr. á árunum 2001‒2010 sem á verðlagi ársins 2011 svara til 2,2 ma.kr. eða að meðaltali 225 m.kr. á ári. [meira]
Árangur viðamikilla sértækra aðgerða verði ávallt metinn formlega og heildstætt

Mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna samdráttar þorskveiðiheimilda árið 2007 gengu almennt eftir eins og ráðgert var. Fjárveitingar vegna þeirra hafa að mestu verið fullnýttar. Ríkisendurskoðun gagnrýnir hins vegar að ekki hefur verið lagt formlegt mat á árangur aðgerðanna. Stofnunin beinir því til stjórnvalda að þau tryggi að árangur viðamikilla sértækra aðgerða verði ávallt metinn með heildstæðum hætti. Þá telur stofnunin mikilvægt að stjórnvöld leiti staðfestingar Alþingis í formi þingsályktunar þegar þau hyggjast verja verulegum fjármunum í slíkar aðgerðir. [meira]
Háskóli Íslands brugðist við ábendingum um verktöku akademískra starfsmanna

Ríkisendurkoðun telur að Háskóli Íslands hafi brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum stofnunarinnar frá 2010 um verktöku fastráðinna akademískra starfsmanna. [meira]
Hafa brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum Ríkisendurskoðunar

Þrír opinberir atvinnuþróunarsjóðir hafa brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum sem Ríkisendurskoðun beindi til þeirra árið 2010.
Efla þarf eftirlit með bótagreiðslum Tryggingastofnunar

Ætla má að bótasvik í almannatryggingakerfinu hafi numið allt að 3,4 milljörðum króna árið 2011. Ríkisendurskoðun telur að efla þurfi eftirlit á þessu sviði, m.a. með því að rýmka lagaheimildir Tryggingastofnunar til að afla og vinna með persónuupplýsingar. Þá eigi að rýmka heimildir stofnunarinnar til að beita viðurlögum við bótasvikum. Mikilvægt sé að viðurlög séu þannig að þau fæli fólk frá því að reyna að svíkja út bætur. [meira]
Ríkisendurskoðandi ritar forystugrein í tímarit Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi fjallar um áhrif bankahrunsins haustið 2008 á rekstur ríkisins og breyttar áherslur Ríkisendurskoðunar í kjölfar þess í forystugrein í nýjasta hefti tímarits Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana (International Journal of Government Auditing). [meira]
Áætlun um stjórnsýsluúttektir 2013–15

Ríkisendurskoðun mun á næstu árum vinna fjölbreyttar stjórnsýsluúttektir og birta niðurstöður þeirra í áreiðanlegum, hlutlægum og aðgengilegum skýrslum. Á árinu 2013 er m.a. fyrirhugað að gera úttektir á árangri af mótvægisaðgerðum stjórnvalda 2008–10 vegna samdráttar í þorskveiðum, ávinningi af aukinni samvinnu stofnana sem sinna færniskertum einstaklingum, alþjóðasamningi um varnir gegn mengun frá skipum, Þjóðskrá og Matvælastofnun. [meira]