Fréttir frá árinu 2005
Sigurður Þórðarson: Pólitíkin og stjórnsýslan - hvor á að gera hvað?
Í þessari grein ræðir Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi, um þær miklu breytingar sem orðið hafa innan íslenskrar stjórnsýslu á undanförnum áratugum og verkaskiptingu embættismanna og stjórnmálamanna. [meira]
Landspítali-háskólasjúkrahús. Árangur 1999-2004

Stjórnendum Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) gekk allvel að halda kostnaði við rekstur spítalans niðri á tímabilinu 1999-2004. Þá náðist ágætur árangur í að auka afköst hans og flytja þjónustu af legudeildum til dag- og göngudeilda. Samanburður við átta bresk sjúkrahús bendir einnig til þess að spítalinn standi sig ágætlega þegar horft er til afkasta og gæða. Það má hins vegar telja bagalegt fyrir spítalann að íslensk stjórnvöld hafa enn ekki mótað heildstæða stefnu um verkaskiptingu innan heilbrigðiskerfisins [meira]
Íbúðalánasjóður. Um aðdraganda og gerð lánasamninga sjóðsins við fjármálastofnanir vegna áhættustýringar

Ríkisendurskoðun hefur sent félagsmálanefnd úttekt sína á Íbúðalánasjóði ásamt bréfi þar sem greint er frá helstu niðurstöðum stofnunarinnar. Bréf þetta og úttektin sjálf eru birt saman í meðfylgjandi skjali. [meira]
Endurskoðun ríkisreiknings 2004
Meðferð bókhaldsgagna hjá stofnunum ríkisins hefur batnað mikið á undanförnum árum og gerir Ríkisendurskoðun nú sífellt færri athugasemdir við umhirðu ríkisfjár. Enn skortir hins vegar á að staðið sé að framkvæmd fjárlaga eins og best væri á kosið. Þá eru óraunhæfar áætlanir í skattkerfinu til baga. [meira]
Þjónusta við aldraða. Stjórnsýsluúttekt

Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið að því að auka og bæta þá þjónustu sem veitt er öldruðum, þ.e. fólki eldra en 67 ára. Enn vantar þó nokkuð upp á að opinber markmið um þessa þjónustu hafi að öllu leyti náð fram að ganga og að öldruðum sé í senn veitt viðeigandi aðstoð til að búa sem lengst á eigin heimili og trygg aðstaða á öldrunarheimili þegar slíkt er ekki lengur mögulegt. [meira]
Úttekt á kaupum á sérfræðiþjónustu
Ríkisendurskoðun hefur tekið saman skýrslu um kaup ríkisstofnana og ráðuneyta á ráðgjöf og annarri sérfræðiþjónustu síðustu fimm ár. Skýrslan er unnin fyrir forseta Alþingis að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns. [meira]
Skipulagsbreytingar hjá Ríkisendurskoðun

Frá og með 1. október í ár mun Óli Jón Jónsson taka við starfi skrifstofustjóra stjórnsýslusviðs hjá Ríkisendurskoðun. Óli Jón (f. 1969) lauk B.A. prófi í sagnfræði og heimspeki frá H.Í. árið 1996, stundaði nám í stjórnmálafræði við Stokkhólmsháskóla 1996-1997 og lauk meistaraprófi í Evrópustjórnmálum frá Háskólanum í Lundi árið 1998. Hann var blaðamaður á Morgunblaðinu 1999-2000, sérfræðingur á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar 2000-2002 og ráðgjafi og aðstoðarframkvæmdastjóri KOM almannatengsla 2002-2005. [meira]
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi. Stjórnsýsluúttekt

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi er ekki frábrugðin öðrum sambærilegum heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni þegar horft er til skilvirkni þeirra og þess ráðstöfunarfjár á íbúa sem þær fá til að sinna hlutverki sínu. Þá hefur stjórnendum stofnunarinnar tekist að laga starfsemina að þeim fjárhagsramma sem henni er settur og breyttum aðstæðum heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. [meira]
Skýrslur Ríkisendurskoðunar. Leitarvél. Póstlisti
Ríkisendurskoðun vekur athygli á því að nú eru allar opinberar skýrslur stofnunarinnar frá 1988 til 2005 aðgengilegar sem pdf-skjöl á heimasíðu stofnunarinnar. Sjá "Skýrslur". Alls er um 179 skýrslur að ræða og eru þær bæði flokkaðar eftir árum og málaflokkum. [meira]
Greinargerð um framkvæmd fjárlaga árið 2004
Ríkisendurskoðun hefur sett á heimasíðu sína greinargerð stofnunarinnar um framkvæmd fjárlaga árið 2004. [meira]
Orðsending. Til formanns fjárlaganefndar frá Ríkisendurskoðun
Í framhaldi af fundi fjárlaganefndar í dag, 16. júní 2005, þar sem fjallað var um minnisblað Ríkisendurskoðunar frá 13. júní sl., skal tekið fram að upplýsingar í minnisblaðinu um eignarhluti í Skinney - Þinganesi hf., byggðu á hluthafalista félagsins frá 15. október 2002. Lögmanni félagsins, sem veitti upplýsingarnar fyrir þess hönd, sást yfir að sumir hluthafar í einkahlutafélaginu Ketillaugu, sem var eigandi að 17,9% í Skinney - Þinganesi hf. skv. framangreindum lista, voru venslaðir Halldóri Ásgrímssyni. [meira]
Hæfi Halldórs Ásgrímssonar
Ríkisendurskoðun hefur gert opinbert minnisblað sitt frá 13. júní 2003 um hæfi Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og fv. utanríkisráðherra, til þess að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins. [meira]
Ríkisendurskoðandi kjörinn í stjórn EUROSAI

Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi var kjörinn í stjórn Samtaka evrópskra ríkisendurskoðunarstofnana (EUROSAI) á sjötta þingi samtakanna sem haldið var dagana 30. maí til 2. júní í Bonn í Þýskalandi. Í stjórninni sitja 8 manns og var Sigurður kjörinn til næstu sex ára. [meira]
Háskóli Íslands. Stjórnsýsluúttekt

Háskóli Íslands er tiltölulega ódýr í rekstri miðað við sambærilega evrópska háskóla og árangur hans á mörgum sviðum kennslu og rannsókna er sömuleiðis ágætur. Ljóst er hins vegar að möguleikar hans til að þróast sem öflugur alþjóðlegur rannsóknarháskóli ráðast að verulegu leyti af því hvaða stefna í uppbyggingu og stjórnun verður valin á komandi árum. [meira]
Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2004

Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér ársskýrslu sína fyrir árið 2004. Þar er m.a. gerð grein fyrir hlutverki stofnunarinnar og meginverkefnum, starfseminni árið 2004 og nokkrum lykiltölum í rekstri. Þá horfir ríkisendurskoðandi yfir farinn veg og fimm starfsmenn stofnunarinnar lýsa þeim sjónarmiðum og aðferðum sem móta dagleg störf þeirra. [meira]
Sigurður Þórðarson: Opinber stjórnsýsla. Nokkur grundvallaratriði
Í þessu erindi ræðir Sigurður Þórðarson um ýmis atriði sem varða arðsemi góðrar stjórnsýslu og hvernig tryggja megi slíka arðsemi. Sérstaklega er fjallað um íslenska stjórnsýslu, skilvirkni hennar og árangur við að sinna verkefnum sínum. [meira]