Fréttir

Fréttir frá árinu 2009

30.12.2009

Upplýsingar um fjárframlög fyrri ára til stjórnmálastarfsemi

Ríkisendurskoðun hefur birt upplýsingar um fjárframlög fyrri ára til stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.  [meira]

11.12.2009

Skýrsla um endurskoðun ríkisreiknings 2008

Ríkisendurskoðun gerir ekki verulegar athugasemdir við reikningsskil stofnana fyrir árið 2008 en bendir á veikleika í innra eftirliti hjá allmörgum þeirra. Einnig gagnrýnir hún útgjöld stofnana umfram fjárheimildir og mismunandi fyrirkomulag greiðslna fyrir yfirvinnu. Þá telur hún að ýmsum spurningum er varða lánveitingar Seðlabankans til fjármálafyrirtækja á síðasta ári sé ósvarað. [meira]

11.12.2009

Nýta má betur framlög til útflutningsaðstoðar og landkynningar

Ríkisendurskoðun telur að öll verkefni ríkisvaldsins á sviði útflutningsaðstoðar og landkynningar eigi að heyra undir fyrirhugaða Íslandsstofu. Einnig þurfi að kveða skýrt á um ábyrgð utanríkisráðherra á málaflokknum í lögum. Þá þurfi að móta heildarstefnu um málaflokkinn og mæla árangur hennar. [meira]

01.12.2009

Útdráttur úr uppgjörum frambjóðenda

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrátt úr uppgjörum 45 frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri/forvali vegna alþingiskosninganna sl. vor. [meira]

18.11.2009

Athugasemdir við innkaup hjá VMSÍ

Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við innkaup hjá Varnarmálastofnun Íslands (VMSÍ). [meira]

13.11.2009

Flokkar og frambjóðendur fá lengri frest

Frestur sem stjórnmálasamtök og frambjóðendur hafa til að skila upplýsingum um framlög fyrri ára til Ríkisendurskoðunar hefur verið framlengdur til 10. desember nk. [meira]

04.11.2009

Skil frambjóðenda á upplýsingum um kostnað

Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit um skil frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri vegna síðustu alþingiskosninga á kostnaðarupplýsingum til stofnunarinnar.  [meira]

03.11.2009

Áherslur og viðfangsefni stjórnsýsluúttekta næstu tvö árin

Sjónum verður sérstaklega beint að þeim meginvandamálum sem stjórnvöld og ríkisstofnanir standa frammi fyrir vegna efnahagshrunsins. [meira]

29.10.2009

Ekki frekari afskipti af máli yfirlæknis hjá HSA

Ríkisendurskoðun mun að svo stöddu ekki aðhafast frekar í máli yfirlæknis hjá HSA en hvetur heilbrigðisráðuneytið til að huga að viðeigandi úrræðum. [meira]

27.10.2009

Ekki ástæða til frekari úttektar á Lyfjastofnun

Ríkisendurskoðun telur ekki tilefni til frekari úttektar á starfsemi Lyfjastofnunar að svo stöddu. Engu að síður beinir hún nokkrum ábendingum til stofnunarinnar og heilbrigðisráðuneytis. [meira]

27.10.2009

Mat á framkvæmd fjárlaga fyrstu átta mánuði þessa árs

Útlit er fyrir að tekjur ríkisins á þessu ári verði nokkru hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir en að halli á rekstrinum verði mun meiri. Almennt hefur ekki verið farið að tilmælum Ríkisendurskoðunar frá því um mitt ár um að tekið verði á rekstrarvanda stofnana. Ríkisendurskoðun gagnrýnir að þótt langt sé liðið á árið hefur enn ekki verið tekin samræmd ákvörðun um meðferð ónýttra fjárheimilda frá árinu 2008. [meira]

27.10.2009

Fjölmargir frambjóðendur enn eftir að skila

Frestur til að skila Ríkisendurskoðun upplýsingum um kostnað af prófkjörsbaráttu vegna alþingiskosninganna 2009 rann út sl. sunnudag. [meira]

15.10.2009

Prentun skýrslna hætt í sparnaðarskyni

Vegna aðhalds í rekstri hefur Ríkisendurskoðun ákveðið að hætta prentun skýrslna sinna og verða þær framvegis eingöngu gefnar út á rafrænu formi. Ákvörðunin er liður í víðtækum sparnaðaraðgerðum hjá stofnuninni.

 [meira]

23.09.2009

Frambjóðendur hafa mánuð til að skila uppgjöri

Aðeins lítill hluti frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna sl. vor hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Skilafrestur rennur út 25. október nk.  [meira]

22.09.2009

Fjölmenni á málþingi um sameiningu stofnana

Á þriðja hundrað manns sótti málþing 16. september sl. um sameiningu og endurskipulagningu ríkisstofnana sem haldið var á vegum Ríkisendurskoðunar, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. [meira]

31.08.2009

Alþingi felur Ríkisendurskoðun aukin verkefni

Ríkisendurskoðun skal taka við og birta upplýsingar um fjárframlög til stjórnmálastarfsemi nokkur ár aftur í tímann samkvæmt lögum sem Alþingi samþykkti skömmu fyrir þingfrestun. Stofnuninni er þó ekki falið að staðfesta réttmæti þessara upplýsinga. Sannleiksgildi þeirra verður alfarið á ábyrgð viðkomandi flokka og frambjóðenda. [meira]

24.08.2009

Samningar um endurskoðun Seðlabanka Íslands

Ríkisendurskoðun hefur samið við endurskoðunarfélagið Deloitte hf. um að annast ytri endurskoðun Seðlabanka Íslands á tímabilinu 2009–2011. Þá hafa Ríkisendurskoðun og Seðlabankinn samið um að stofnunin annist innri endurskoðun bankans á sama tímabili. [meira]

07.08.2009

Athugun á kaupum forsætisráðuneytisins á sérfræðiþjónustu

Ríkisendurkoðun gerir ekki athugasemdir við kaup forsætisráðuneytisins á sérfræðiþjónustu haustið 2008 sem tengdust bankahruninu. Aftur á móti þarf ráðuneytið að endurskoða almennt verklag sitt við kaup á sérfræðiþjónustu.  [meira]

02.07.2009

Mat á árangri stjórnsýsluúttekta ársins 2005

Tæplega níu af hverjum tíu ábendingum í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar sem lokið var árið 2005 höfðu verið framkvæmdar þremur árum síðar. [meira]

25.06.2009

Úttekt á fjárhagsstöðu 50 ríkisstofnana

Fjárlög munu ekki halda hjá um fjórðungi þeirra stofnana sem úttekt Ríkisendurskoðunar náði til. Hjá átta stofnunum er staðan svo slæm að bregðast þarf tafarlaust við.  [meira]

23.06.2009

Efla þarf úrræði stjórnvalda til að innheimta sektir

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að hér á landi eru háar sektir yfirleitt ekki greiddar heldur gerðar upp með samfélagsþjónustu. Kanna þurfi hvort þetta fyrirkomulag sé skynsamlegt út frá því markmiði refsinga að fæla menn frá afbrotum. Stofnunin telur einnig að efla þurfi úrræði stjórnvalda til að innheimta sektir. [meira]

12.06.2009

Bent á leiðir til að bæta fjármálastjórn ráðuneyta og stofnana

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að ráðuneytin þurfi að samræma eftirlit sitt með framkvæmd fjárlaga hjá stofnunum. Einnig vanti samræmdar reglur um meðferð uppsafnaðs halla og ónýttra fjárheimilda. Þá sé brýnt að gera rekstraráætlanir fyrir fleiri fjárlagaliði en hingað til og tryggja að allar slíkar áætlanir séu skráðar í bókhaldskerfi ríkisins. [meira]

03.06.2009

Nýta má betur ríkisframlög til safnamála

Stjórnvöld þurfa að móta heildarstefnu um málefni muna- og minjasafna og auka ber forræði menntamálaráðuneytisins á þessu sviði. Þá ætti að fækka söfnum eða auka samvinnu þeirra til að skapa öflugri rekstrareiningar. Einnig þarf að móta langtímastefnu um fjárveitingar til safnamála og fela einum aðila að samræma úthlutanir.  [meira]

26.05.2009

Athugun á kaupum forsætisráðuneytisins á sérfræðiþjónustu

Ríkisendurkoðun gerir ekki athugasemdir við kaup forsætisráðuneytisins á sérfræðiþjónustu haustið 2008 sem tengdust bankahruninu. Aftur á móti þarf ráðuneytið að endurskoða almennt verklag sitt við kaup á sérfræðiþjónustu.  [meira]

06.05.2009

Skýrsla um stofnefnahag Keflavíkurflugvallar ohf.

Ríkisendurskoðun hefur metið eignir og skuldir opinbers hlutafélags sem stofnað var á síðasta ári um rekstur Keflavíkurflugvallar. [meira]

05.05.2009

Skýrsla um fjárreiður sjálfseignarstofnana sem ekki stunda atvinnurekstur

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárreiður sjálfseignarstofnana sem ekki stunda atvinnurekstur kemur fram að nokkur misbrestur er á því að slíkir aðilar sendi stofnuninni ársreikninga sína eins og lög kveða á um.  [meira]

25.03.2009

Frambjóðendur í prófkjörum minntir á upplýsingaskyldu

Ríkisendurskoðun hefur sent frambjóðendum í prófkjörum bréf þar sem minnt er á skyldu þeirra að upplýsa um kostnað vegna kosningabaráttunnar. Þá hefur stofnunin sett gögn á heimasíðu sína sem eiga að auðvelda frambjóðendum að rækja þessa upplýsingaskyldu. [meira]

13.03.2009

Frambjóðendur í prófkjörum minntir á upplýsingaskyldu

Ríkisendurskoðun hefur sent frambjóðendum í prófkjörum bréf þar sem minnt er á skyldu þeirra að upplýsa um kostnað vegna kosningabaráttunnar. Þá hefur stofnunin sett gögn á heimasíðu sína sem eiga að auðvelda frambjóðendum að rækja þessa upplýsingaskyldu. [meira]

10.03.2009

Upplýsingastefna Ríkisendurskoðunar

Mótuð hefur verið stefna um innri og ytri upplýsingamiðlun Ríkisendurskoðunar sem skilgreinir markmið og leiðir á þessu sviði. [meira]

25.02.2009

Átak í eftirliti með ráðuneytum og stofnunum

Vegna breyttra aðstæðna í ríkisfjármálunum gerir Ríkisendurskoðun nú átak í eftirliti með fjármálastjórn ráðuneyta og stofnana. [meira]

23.01.2009

Samningar um endurskoðun ríkisbankanna

Ríkisendurskoðun hefur samið við þrjú endurskoðunarfélög um að annast endurskoðun nýju ríkisbankanna á tímabilinu 2009-2010. Einnig hefur verið gengið frá ráðningu félaga til að endurskoða stofnefnahagsreikninga tveggja banka og reikninga þeirra fyrir tímabilið frá stofnun til ársloka 2008. [meira]

21.01.2009

Forstöðumenn hvattir til að vera á varðbergi

Ríkisendurskoðun hefur sent öllum forstöðumönnum ríkisstofnana bréf þar sem þeir eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar stofnunarinnar um aðferðir til að fyrirbyggja fjármálamisferli. [meira]