Fréttir

Fréttir frá árinu 2010

22.12.2010

Breyta þarf fyrirkomulagi stuðnings við atvinnu- og byggðaþróun

Ríkisendurskoðun telur að samvinna aðila sem starfa að stuðningi við atvinnu- og byggðaþróun sé ónóg og verkaskipting milli þeirra óljós. Æskilegt sé að fela einu ráðuneyti ábyrgð á málaflokknum. [meira]

20.12.2010

Fjölmargir frambjóðendur enn eftir að skila upplýsingum

Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit um skil frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri vegna sveitarstjórnarkosninganna sl. vor á kostnaðarupplýsingum til stofnunarinnar. [meira]

20.12.2010

Ríkisendurskoðun ítrekar ábendingar frá 2007 um háskólakennslu

Ríkisendurskoðun fagnar ýmsum jákvæðum breytingum í starfi háskóla frá því stofnunin birti skýrslu um háskólakennslu árið 2007. Engu að síður ítrekar stofnunin nú nokkrar ábendingar skýrslunnar og setur fram eina nýja. [meira]

17.12.2010

Útdráttur úr ársreikningum stjórnmálasamtaka 2009

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrátt úr ársreikningum stjórnmálasamtaka fyrir árið 2009 þar sem m.a. koma fram upplýsingar um framlög til þeirra frá lögaðilum. Aðeins er birtur útdráttur úr ársreikningum fjögurra samtaka en stofnuninni hafa enn ekki borist reikningar frá fleirum. [meira]

16.12.2010

Ábendingar frá 2007 um stjórnsýslu vinnuverndarmála ítrekaðar

Ríkisendurskoðun ítrekar ábendingar frá árinu 2007 til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um leiðir til að bæta skipulag og stjórnun vinnuverndarmála. [meira]

15.12.2010

Opinberir atvinnuþróunarsjóðir herði kröfur til umsækjenda

Ríkisendurskoðun telur að opinberir atvinnuþróunarsjóðir þurfi að herða kröfur til þeirra sem sækja um styrki úr þeim. Umsækjendum verði m.a. gert skylt að greina frá öðrum styrkjum sem þeir þiggja eða hafa þegið úr opinberum sjóðum. [meira]

06.12.2010

Ýmsar athugasemdir gerðar við reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins

Í skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2009 gerir Ríkisendurskoðun margvíslegar athugasemdir við reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Meðal annars er gagnrýnt að ekki skuli getið um tilteknar fjárhagslegar skuldbindingar í reikningnum. Þá telur stofnunin ekki ljóst á hvaða lagaheimild framlag ríkissjóðs til endurreisnar Sjóvár byggðist. [meira]

22.11.2010

Ítrekar ábendingar um aðgerðir gegn fíkniefnasmygli

Stjórnvöld hafa farið að flestum ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar um aðgerðir gegn fíkniefnasmygli sem birt var fyrir þremur árum. Stofnunin ítrekar nú fjórar ábendingar sem annaðhvort hefur ekki verið fylgt eða einungis að hluta. [meira]

17.11.2010

Frambjóðendur til stjórnlagaþings minntir á upplýsingaskyldu

Ríkisendurskoðun vekur athygli frambjóðenda til stjórnlagaþings á því að þeim ber lögum samkvæmt að skila stofnuninni upplýsingum um tekjur og kostnað vegna kosningabaráttu sinnar. Skilafrestur er til 28. febrúar 2011. [meira]

12.11.2010

Línur lagðar um stjórnsýsluúttektir næstu ára

Ríkisendurskoðun mun leggja áherslu á vandamál stjórnvalda og stofnana vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs í stjórnsýsluúttektum sínum á næstu tveimur árum. [meira]

10.11.2010

Könnun á viðhorfi forstöðumanna til starfsmannamála

Niðurstöður könnunar Ríkisendurskoðunar á viðhorfi forstöðumanna ríkisstofnana til starfsmannamála voru kynntar á morgunverðarfundi á Grand hóteli í dag. [meira]

29.10.2010

Mikilvægt að eyða óvissu um framtíð RES Orkuskóla

Óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll skólans. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi um tvennt að velja: Annaðhvort að hætta stuðningi við skólann eða yfirtaka starfsemina. Brýnt er að ákvörðun verði tekin sem fyrst. [meira]

27.10.2010

Athugasemd vegna fréttar mbl.is um málefni Menntaskólans Hraðbrautar

Í frétt mbl.is í gær, 26. október, er því haldið fram að í greinargerð Ríkisendurskoðunar um málefni Hraðbrautar komi fram rangar tölur um ofgreidd ríkisframlög til skólans. Af þessu tilefni vill stofnunin koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. [meira]

26.10.2010

Skrifstofa Alþingis endurskoði verklag við innkaup

Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér sjálfstæða ábendingu þar sem skrifstofa Alþingis er hvött til að endurskoða verklag sitt við verðfyrirspurnir og útboð. [meira]

15.10.2010

Athugasemdir gerðar við undirbúning sameiningar

Skýr markmið voru með sameiningu Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. og verkstjórn í ferlinu var með eðlilegum hætti. Ríkisendurskoðun telur þó að undirbúningi hafi að nokkru leyti verið áfátt. [meira]

07.10.2010

Afkoma ríkissjóðs betri en búist var við

Tekjur ríkisins á fyrstu átta mánuðum þessa árs voru meiri og gjöldin minni en reiknað var með í ársbyrjun. Dæmi eru um að ráðuneytin hafi samþykkt rekstraráætlanir stofnana sem ekki rúmast innan fjárheimilda þeirra. Ríkisendurskoðun gagnrýnir þetta og telur að Alþingi eigi að taka á vandanum. [meira]

01.10.2010

Framkvæmd þjónustusamnings gagnrýnd

Ofgreidd ríkisframlög til Hraðbrautar ehf., sem rekur Menntaskólann Hraðbraut, námu samtals 192 m.kr. á sjö ára tímabili. Félagið greiddi eigendum arð án þess að hafa í raun bolmagn til þess. Fjárhagslegt uppgjör hefur aldrei farið fram þrátt fyrir skýrt ákvæði í þjónustusamningi. [meira]

24.09.2010

Óskráð vanhæfisregla gildir um starfsmenn Ríkisendurskoðunar

Starfsmenn Ríkisendurskoðunar geta talist vanhæfir í skilningi stjórnsýsluréttar ef mál varða nána venslamenn þeirra. Þá hafa forstöðumenn ríkisstofnana almennt heimild til að leita ráðgjafar Ríkisendurskoðunar um fjárreiðutengd málefni. Þetta kemur fram í lögfræðiáliti sem stofnunin hefur látið vinna. [meira]

14.09.2010

Vel staðið að sameiningu Fasteignaskrár og Þjóðskrár

Ákvörðun um sameiningu var tekin að vel athuguðu máli og markmið hennar voru skýr. Þá er áætlun um framkvæmdina til fyrirmyndar að mati Ríkisendurskoðunar. [meira]

08.09.2010

Ábendingar frá 2007 ítrekaðar

Af fimm ábendingum sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um sameiningu St. Jósefsspítala og Sólvangs hafa tvær verið framkvæmdar að fullu. Ríkisendurskoðun ítrekar nú hinar þrjár. [meira]

03.09.2010

Bæta þarf eftirlit með framkvæmd búvörusamninga

Hluti greiðslna ríkisins til bænda var rangfærður í bókhaldi ríkisins. Auka þarf gagnsæi greiðslna vegna búvörusamninga. [meira]

01.09.2010

Athugasemd vegna fréttaflutnings um málefni Keilis

Ríkisendurskoðun hefur sent fjölmiðlum eftirfarandi ábendingar vegna opinberra ummæla sem framkvæmdastjóri Keilis ehf. hefur látið falla um skýrslu stofnunarinnar. [meira]

31.08.2010

Einkaskólum ber að tryggja eigið rekstraröryggi

Margt er vel gert í starfi Keilis ehf. að mati Ríkisendurskoðunar en efla þarf gæðastarf skólans. Þá telur stofnunin óvíst hvort fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir rekstri hans.  [meira]

27.08.2010

Bæta þarf stjórnun og eftirlit með þjónustu við fatlaða

Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni. [meira]

20.08.2010

FR breyti verklagi við innkaup

Ríkisendurskoðun telur að Fasteignir ríkissjóðs (FR) þurfi að breyta verklagi sínu við kaup á þjónustu til að jafnræðis milli fyrirtækja sé gætt. [meira]

23.07.2010

Ákvarðanir sveitarstjórnar orsök fjárhagsvanda

Rekja má erfiða fjárhagsstöðu Álftaness til ákvarðana sveitarstjórnar á tímabilinu 2006–2009. [meira]

29.06.2010

Heildargjöld innan fjárheimilda árið 2009

Gjöld A-hluta ríkissjóðs voru innan fjárheimilda á árinu 2009. Áform um tekjuöflun gengu eftir og gott betur. Gjöldin voru einnig innan heimilda á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010. [meira]

22.06.2010

Athugasemd vegna fréttar um málefni Álftaness

Í frétt Pressunnar í dag koma fram rangar upplýsingar um athugun Ríkisendurskoðunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness. [meira]

15.06.2010

Ekki gerð athugasemd við undirbúning sameiningar

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningar skattumdæma landsins. Stofnunin bendir á mikilvægi þess að stutt verði við starfsfólk og að stefnumótun verði lokið. [meira]

21.05.2010

Skýrsla um fjárhag Álftaness birt um miðjan júní

Ríkisendurskoðun vinnur að því að ljúka athugun á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness. [meira]

19.05.2010

Misbrestur á að sjálfseignarstofnanir skili reikningum

Tæplega þriðjungur sjálfseignarstofnana sem lögum samkvæmt áttu að skila reikningum sínum fyrir árið 2008 til Ríkisendurskoðunar hefur ekki gert það. [meira]

11.05.2010

Gera þarf nýjan samning um rekstur HSSA

Ríkisendurskoðun telur brýnt að heilbrigðisráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður semji að nýju um rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA). [meira]

10.05.2010

Háar sektir vegna „hvítflibbabrota‘‘ sjaldan greiddar

Vegna svars dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn á Alþingi um fésektir og fjölmiðlaumræðu í kjölfar þess, vill Ríkisendurskoðun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. [meira]

04.05.2010

Athugasemd vegna fjölmiðlaumræðu um prófkjörsmál

Vegna umræðu í fjölmiðlum undanfarið um fjármál frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri/forvali fyrir kosningar sem fóru fram á árunum 2006 og 2007, vill Ríkisendurskoðun árétta eftirfarandi. [meira]

28.04.2010

Eyðublað til að nota við verðkannanir

Starfsmenn Ríkisendurskoðunar og Ríkiskaupa hafa í sameiningu mótað sérstakt eyðublað sem stofnanir geta notað til að kanna verð á vörum eða þjónustu. [meira]

16.04.2010

Athugasemd vegna fjölmiðlaumræðu

Vegna umræðu í fjölmiðlum að undanförnu um málefni tengd einkavæðingu ríkisbankanna vill Ríkisendurskoðun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. [meira]

07.04.2010

Bréf vegna samskipta heilbrigðisráðherra og forstjóra SÍ

Ríkisendurskoðandi hefur sent forseta Alþingis bréf vegna samskipta heilbrigðisráðherra og forstjóra Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). [meira]

06.04.2010

Nýtt skipurit Ríkisendurskoðunar

Innra skipulagi Ríkisendurskoðunar hefur verið breytt og tók nýtt skipurit gildi 1. apríl sl.  [meira]

31.03.2010

Skýrsla um starfsemi Ríkisendurskoðunar árið 2009

Út er komin ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2009 þar sem gerð er grein fyrir starfsemi stofnunarinnar á síðasta ári. [meira]

29.03.2010

Nauðsynlegt að bæta úr húsnæðisvanda fangelsa

Skortur er á rými fyrir fanga í fangelsum landsins. Ríkisendurskoðun telur brýnt að úr þessu verði bætt og að stjórnvöld móti heildarstefnu um fullnustu refsinga. Þá þurfi að breyta skipulagi fangelsismála. [meira]

25.03.2010

Auka þarf aga í fjárlagaferlinu

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi benti á leiðir til að auka aga og aðhaldssemi í fjárlagaferlinu á morgunverðarfundi sem Ríkisendurskoðun stóð að ásamt fleirum á Grand Hóteli í dag. [meira]

22.03.2010

Mun fylgjast grannt með sameiningu ríkisstofnana

Ríkisendurskoðun ætlar að hafa eftirlit með því hvernig áform stjórnvalda um sameiningu stofnana munu ganga fram. [meira]

05.03.2010

Fyrirkomulag verktakagreiðslna hjá Fasteignaskrá gagnrýnt

Í nýrri skýrslu gagnrýnir Ríkisendurskoðun það fyrirkomulag sem verið hefur á verktaktagreiðslum hjá Fasteignaskrá Íslands. [meira]

02.03.2010

Leiðbeiningarrit um frjálsan hugbúnað

Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. [meira]

02.03.2010

Árangur stjórnsýsluúttekta frá 2006

Rúmlega þrjár af hverjum fjórum ábendingum í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2006 höfðu verið framkvæmdar að fullu eða hluta þremur árum síðar. [meira]

25.02.2010

Dæmi um að stofnanir virði ekki lög um opinber innkaup

Misbrestur er á því að ríkisstofnanir fylgi ákvæðum laga um útboðsskyldu, verðsamanburð, gagnsæi og jafnræði í opinberum innkaupum. Í nýrri skýrslu bendir Ríkisendurskoðun á leiðir til úrbóta. [meira]

15.02.2010

Athugasemdir við verktakagreiðslur Háskóla Íslands

Ríkisendurskoðun gagnrýnir verktakagreiðslur Háskóla Íslands til fastráðinna starfsmanna sinna fyrir kennslu sem skilgreind er sem endurmenntun. [meira]

10.02.2010

Hægt að auka hagkvæmni innkaupa hjá ríkinu

Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að gefa innkaupamálum aukið vægi í starfsemi sinni, setja sér tímasett og mælanleg markmið á þessu sviði og fylgjast með árangri undirstofnana sinna.  [meira]

04.02.2010

Útdráttur úr reikningum stjórnmálaflokkanna 2008

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrátt úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2008 þar sem m.a. koma fram upplýsingar um fjárframlög til þeirra frá lögaðilum. Tveir flokkar hafa ekki skilað stofnuninni ársreikningum. [meira]