Fréttayfirlit

Fréttir frá árinu 2010

08.09.2010

Ábendingar frá 2007 ítrekaðar

Af fimm ábendingum sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um sameiningu St. Jósefsspítala og Sólvangs hafa tvær verið framkvæmdar að fullu. Ríkisendurskoðun ítrekar hinar þrjár. Lesa meira

03.09.2010

Bæta þarf eftirlit með framkvæmd búvörusamninga

Hluti greiðslna ríkisins til bænda var rangfærður í bókhaldi ríkisins. Auka þarf gagnsæi greiðslna vegna búvörusamninga. Lesa meira

01.09.2010

Athugasemd vegna fréttaflutnings um málefni Keilis

Ríkisendurskoðun hefur sent fjölmiðlum eftirfarandi ábendingar vegna opinberra ummæla sem framkvæmdastjóri Keilis ehf. hefur látið falla um skýrslu stofnunarinnar. Lesa meira

31.08.2010

Einkaskólum ber að tryggja eigið rekstraröryggi

Margt er vel gert í starfi Keilis ehf. að mati Ríkisendurskoðunar en efla þarf gæðastarf skólans. Þá telur stofnunin óvíst hvort fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir rekstri hans.  Lesa meira

27.08.2010

Bæta þarf stjórnun og eftirlit með þjónustu við fatlaða

Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni. Lesa meira

20.08.2010

FR breyti verklagi við innkaup

Ríkisendurskoðun telur að Fasteignir ríkissjóðs (FR) þurfi að breyta verklagi sínu við kaup á þjónustu til að jafnræðis milli fyrirtækja sé gætt. Lesa meira

23.07.2010

Ákvarðanir sveitarstjórnar orsök fjárhagsvanda

Rekja má erfiða fjárhagsstöðu Álftaness til ákvarðana sveitarstjórnar á tímabilinu 2006–2009. Lesa meira

29.06.2010

Heildargjöld innan fjárheimilda árið 2009

Gjöld A-hluta ríkissjóðs voru innan fjárheimilda á árinu 2009. Áform um tekjuöflun gengu eftir og gott betur. Gjöldin voru einnig innan heimilda á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010. Lesa meira

22.06.2010

Athugasemd vegna fréttar um málefni Álftaness

Í frétt Pressunnar í dag koma fram rangar upplýsingar um athugun Ríkisendurskoðunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness. Lesa meira

15.06.2010

Ekki gerð athugasemd við undirbúning sameiningar

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningar skattumdæma landsins. Stofnunin bendir á mikilvægi þess að stutt verði við starfsfólk og að stefnumótun verði lokið. Lesa meira

21.05.2010

Skýrsla um fjárhag Álftaness birt um miðjan júní

Ríkisendurskoðun vinnur að því að ljúka athugun á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness. Lesa meira

19.05.2010

Misbrestur á að sjálfseignarstofnanir skili reikningum

Tæplega þriðjungur sjálfseignarstofnana sem lögum samkvæmt áttu að skila reikningum sínum fyrir árið 2008 til Ríkisendurskoðunar hefur ekki gert það. Lesa meira

11.05.2010

Gera þarf nýjan samning um rekstur HSSA

Ríkisendurskoðun telur brýnt að heilbrigðisráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður semji að nýju um rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands (HSSA). Lesa meira

10.05.2010

Háar sektir vegna „hvítflibbabrota‘‘ sjaldan greiddar

Vegna svars dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn á Alþingi um fésektir og fjölmiðlaumræðu í kjölfar þess, vill Ríkisendurskoðun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Lesa meira

04.05.2010

Athugasemd vegna fjölmiðlaumræðu um prófkjörsmál

Vegna umræðu í fjölmiðlum undanfarið um fjármál frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri/forvali fyrir kosningar sem fóru fram á árunum 2006 og 2007, vill Ríkisendurskoðun árétta eftirfarandi. Lesa meira

28.04.2010

Eyðublað til að nota við verðkannanir

Starfsmenn Ríkisendurskoðunar og Ríkiskaupa hafa í sameiningu mótað sérstakt eyðublað sem stofnanir geta notað til að kanna verð á vörum eða þjónustu. Lesa meira

16.04.2010

Athugasemd vegna fjölmiðlaumræðu

Vegna umræðu í fjölmiðlum að undanförnu um málefni tengd einkavæðingu ríkisbankanna vill Ríkisendurskoðun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Lesa meira

07.04.2010

Bréf vegna samskipta heilbrigðisráðherra og forstjóra SÍ

Ríkisendurskoðandi hefur sent forseta Alþingis bréf vegna samskipta heilbrigðisráðherra og forstjóra Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Lesa meira

06.04.2010

Nýtt skipurit Ríkisendurskoðunar

Innra skipulagi Ríkisendurskoðunar hefur verið breytt og tók nýtt skipurit gildi 1. apríl sl.  Lesa meira

31.03.2010

Skýrsla um starfsemi Ríkisendurskoðunar árið 2009

Út er komin ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2009 þar sem gerð er grein fyrir starfsemi stofnunarinnar á síðasta ári. Lesa meira

29.03.2010

Nauðsynlegt að bæta úr húsnæðisvanda fangelsa

Skortur er á rými fyrir fanga í fangelsum landsins. Ríkisendurskoðun telur brýnt að úr þessu verði bætt og að stjórnvöld móti heildarstefnu um fullnustu refsinga. Þá þurfi að breyta skipulagi fangelsismála. Lesa meira

25.03.2010

Auka þarf aga í fjárlagaferlinu

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi benti á leiðir til að auka aga og aðhaldssemi í fjárlagaferlinu á morgunverðarfundi sem Ríkisendurskoðun stóð að ásamt fleirum á Grand Hóteli í dag. Lesa meira

22.03.2010

Mun fylgjast grannt með sameiningu ríkisstofnana

Ríkisendurskoðun ætlar að hafa eftirlit með því hvernig áform stjórnvalda um sameiningu stofnana munu ganga fram. Lesa meira

05.03.2010

Fyrirkomulag verktakagreiðslna hjá Fasteignaskrá gagnrýnt

Í nýrri skýrslu gagnrýnir Ríkisendurskoðun það fyrirkomulag sem verið hefur á verktaktagreiðslum hjá Fasteignaskrá Íslands. Lesa meira

02.03.2010

Leiðbeiningarrit um frjálsan hugbúnað

Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Lesa meira

02.03.2010

Árangur stjórnsýsluúttekta frá 2006

Rúmlega þrjár af hverjum fjórum ábendingum í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2006 höfðu verið framkvæmdar að fullu eða hluta þremur árum síðar. Lesa meira

25.02.2010

Dæmi um að stofnanir virði ekki lög um opinber innkaup

Misbrestur er á því að ríkisstofnanir fylgi ákvæðum laga um útboðsskyldu, verðsamanburð, gagnsæi og jafnræði í opinberum innkaupum. Í nýrri skýrslu bendir Ríkisendurskoðun á leiðir til úrbóta. Lesa meira

15.02.2010

Athugasemdir við verktakagreiðslur Háskóla Íslands

Ríkisendurskoðun gagnrýnir verktakagreiðslur Háskóla Íslands til fastráðinna starfsmanna sinna fyrir kennslu sem skilgreind er sem endurmenntun. Lesa meira

10.02.2010

Hægt að auka hagkvæmni innkaupa hjá ríkinu

Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að gefa innkaupamálum aukið vægi í starfsemi sinni, setja sér tímasett og mælanleg markmið á þessu sviði og fylgjast með árangri undirstofnana sinna.  Lesa meira

04.02.2010

Útdráttur úr reikningum stjórnmálaflokkanna 2008

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrátt úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2008 þar sem m.a. koma fram upplýsingar um fjárframlög til þeirra frá lögaðilum. Tveir flokkar hafa ekki skilað stofnuninni ársreikningum. Lesa meira