Fréttir

Fréttir frá árinu 2012

09.05.2012

Fjárlaganefnd kalli ráðherra fyrir vegna vanda stofnana með verulegan uppsafnaðan halla

Ríkisendurskoðun telur að taka verði á vanda stofnana sem sitja uppi með verulegan uppsafnaðan rekstrarhalla frá fyrri árum. Að mati stofnunarinnar þjónar engum tilgangi að láta slíkan halla hvíla á stofnunum ef ekki er talið raunhæft að ætla að þær muni geta greitt hann upp. [meira]

04.05.2012

Skýrsla um starfsemi Ríkisendurskoðunar árið 2011

Út er komin ársskýrsla Ríkisendurskoðunar fyrir árið 2011 þar sem gerð er grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og helstu niðurstöðum endurskoðunar og athugana hennar á síðasta ári. [meira]

30.04.2012

Eftirfylgni með skýrslu um útflutningsaðstoð og landkynningu

Allar ábendingar í skýrslu um útflutningsaðstoð og landkynningu frá árinu 2009 hafa komið til framkvæmda nema tvær. Ríkisendurskoðun fellur frá annarri þeirra en ítrekar hina.

 [meira]

12.04.2012

Auka þarf gagnsæi rannsóknarframlaga til háskóla og eftirlit með nýtingu þeirra

Ríkisendurskoðun telur að yfirvöld menntamála þurfi að skilgreina betur opinber framlög til rannsókna í háskólum til að bæta yfirsýn um þau. Einnig þurfi þau að efla eftirlit með nýtingu framlaganna og samræma mat á gæðum og árangri rannsókna. Þá þurfi yfirvöld að fylgja betur en þau gera nú stefnu Vísinda- og tækniráðs í málaflokknum og endurskoða fyrirkomulag opinberra fjárveitinga til háskóla.  [meira]

29.03.2012

Helstu niðurstöður úttektar á skuldbindandi samningum ráðuneytanna

Í samtals átta skýrslum hefur Ríkisendurskoðun hvatt ráðuneytin til að bæta umsýslu og eftirlit með skuldbindandi samningum við samtök, einkaaðila og sveitarfélög. Viðbrögð ráðuneytanna hafa almennt verið jákvæð.  [meira]

26.03.2012

Fóðursjóður verði lagður niður

Ríkisendurskoðun telur að núverandi starfsemi Fóðursjóðs sé dæmi um óþarfa stjórnsýslu. Óverulegar tekjur renna í sjóðinn þar sem fóðurtollar hafa í reynd verið afnumdir. Að mati stofnunarinnar ber að leggja sjóðinn niður. [meira]

20.03.2012

Taka verður á fjárhagsvanda Landbúnaðarháskólans

Stjórnendum Landbúnaðarháskóla Íslands hefur ekki tekist að láta enda ná saman í rekstrinum og skuldir hans eru miklar. Ríkisendurskoðun hvetur stjórnendur og yfirvöld menntamála til að taka á þessum vanda. Jafnframt minnir stofnunin á að forstöðumenn ríkisstofnana bera samkvæmt lögum ábyrgð á því að starfsemi þeirra sé í samræmi við fjárheimildir. [meira]

05.03.2012

Skýrsla um skuldbindandi samninga utanríkisráðuneytisins

Utanríkisráðuneytið fylgir föstu verklagi við eftirlit með samningum sem það hefur gert við aðila utan ríkisins. Hins vegar þarf ráðuneytið að skjalfesta verklagsreglur vegna samningamála, samræma ákvæði samninga og tengja greiðslur við markmið, frammistöðu eða framvindu verkefna. [meira]

28.02.2012

Fjárveitingar til hjúkrunarheimila drógust saman að raungildi

Opinberar fjárveitingar til hjúkrunarheimila drógust saman að raungildi milli áranna 2008 og 2010. Þrátt fyrir þetta tókst heimilunum almennt betur að laga rekstur sinn að tekjum seinna árið en hið fyrra. Tölur sem Ríkisendurskoðun kannaði benda ekki til þess að þjónusta við íbúa hafi verið skert á tímabilinu. [meira]

15.02.2012

Misbrestur á því að stofnanir skili rekstraráætlunum innan tímamarka

Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að ríkisstofnanir virði tímafrest sem gildir um skil á rekstraráætlunum til ráðuneyta. Tryggja þurfi að allar áætlanir séu skráðar inn í bókhaldskerfi ríkisins um leið og þær hafa hlotið samþykki. Þá sé brýnt að ráðuneytin samþykki ekki rekstraráætlanir sem ekki rúmast innan fjárheimilda. [meira]

09.02.2012

Skýrsla um skuldbindandi samninga umhverfisráðuneytisins

Umhverfisráðuneytið þarf að tryggja að eftirlit þess með framkvæmd skuldbindandi samninga, sem það hefur gert við aðila utan ríkisins, sé að fullu í samræmi við ákvæði þeirra. Þá þarf ráðuneytið að tengja greiðslur til viðsemjenda við frammistöðu þeirra og bæta yfirferð upplýsinga sem frá þeim berast. [meira]

08.02.2012

Sjötta skýrslan um samningamál einstakra ráðuneyta

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd þessara samninga sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Ráðuneytið vinnur að endurbótum á samningamálum sínum. [meira]

03.02.2012

Þarf að efla eftirlit sitt með framkvæmd skuldbindandi samninga

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið þarf að efla eftirlit sitt með framkvæmd skuldbindandi samninga sem það hefur gert við aðila utan ríkisins, samræma ákvæði þeirra og skjalfesta verklagsreglur vegna samningamála. [meira]

26.01.2012

Taka þarf af skarið um framtíð Náttúruminjasafnsins

Ríkisendurskoðun telur að Náttúruminjasafn Íslands uppfylli ekki lögbundndar skyldur sínar sem safn og höfuðsafn. Stjórnvöld þurfi að ákveða hvernig haga eigi starfseminni til framtíðar og móta skýra stefnu um hana. Annaðhvort verði safnið eflt sem sérstök stofnun eða sameinað annarri stofnun. [meira]

18.01.2012

Ýmis álitaefni uppi um meðferð fjárhagslegra skuldbindinga í fjárlögum og ríkisreikningi

Ríkisendurskoðun telur að fást þurfi niðurstaða um hvort breyta eigi umfjöllun um tilteknar fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóðs í fjárlögum og ríkisreikningi. Hér er átt við skuldbindingar vegna verk-, leigu- og þjónustusamninga sem gerðir eru til langs tíma, lífeyrisskuldbindingar og skuldbindingar sem tengjast einkaframkvæmdum og styrkveitingum. [meira]

11.01.2012

Engin ábending vegna skuldbindandi samnings forsætisráðuneytisins

Forsætisráðuneytið hefur í meginatriðum sinnt eftirliti og eftirfylgni með þjónustusamningi sínum við Vesturfarasetrið á Hofsósi í samræmi við ákvæði hans. Samningur þessi rann út í árslok 2011 jafnframt því sem forræði í málefnum setursins fluttist til mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Það mun því héðan í frá annast samningsgerð við setrið og endurnýjun þjónustusamnings. Af þessum sökum sér Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að beina ábendingum vegna samningamála til forsætisráðuneytisins.  [meira]

09.01.2012

Innanríkisráðuneytið hefur nokkuð góða yfirsýn um skuldbindandi samninga

Innanríkisráðuneytið og undirstofnanir þess hafa gert allmarga saminga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytið hafi nokkuð góða yfirsýn um þessa samninga en að efla þurfi eftirlit með framkvæmd þeirra. [meira]

03.01.2012

Stefna Ríkisendurskoðunar 2012–2015

Samkvæmt stefnu Ríkisendurskoðunar fyrir tímabilið 2012–2015 vill stofnunin njóta trausts Alþingis, stjórnvalda og almennings. Þessu markmiði hyggst hún m.a. ná með því að veita stjórnvöldum virkt aðhald, ástunda fagleg vinnubrögð og veita áreiðanlegar og óhlutdrægar upplýsingar um starfsemi ríkisins.  [meira]