Fréttayfirlit

01.12.2009

Útdráttur úr uppgjörum frambjóðenda

Smelltu á myndina til að stækka hana

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrátt úr uppgjörum 45 frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri/forvali vegna alþingiskosninganna sl. vor.

Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda ber frambjóðendum í persónukjöri að skila Ríkisendurskoðun reikningum sínum árituðum af endurskoðendum eigi síðar en sex mánuðum frá því að kosning fór fram. Ríkisendurskoðun skal síðan vinna útdrátt úr þessum reikningum og birta opinberlega. Frambjóðendur sem hafa minni kostnað af kosningabaráttu en 300 þús.kr. þurfa þó einungis að skila undirritaðri yfirlýsingu þar um til stofnunarinnar.

Alls hafa nú 45 frambjóðendur sem tóku þátt í prófkjöri/forvali vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009 skilað uppgjörum en 251 hefur skilað yfirlýsingu um að kostnaður hafi verið innan við 300 þús.kr. Heildarfjöldi frambjóðenda var 317 og eiga því 21 enn eftir að skila upplýsingum til Ríkisendurskoðunar.

Í útdrætti Ríkisendurskoðunar er gerð grein fyrir heildarkostnaði hvers frambjóðanda og heildartekjum hans. Tekjur eru sundurliðaðar eftir uppruna þannig að greint er á milli framlaga frá lögaðilum, frá einstaklingum og eigin framlags. Þá er gerð grein fyrir afsláttum frá markaðsverði þar sem það á við. Loks eru birt nöfn þeirra lögaðila sem veitt hafa viðkomandi frambjóðanda framlag ásamt fjárhæð þess. 

Eftirtaldir frambjóðendur eiga enn eiga eftir að skila uppgjöri eða eftir atvikum yfirlýsingu um kostnað af þátttöku í prófkjöri vegna alþingiskosninganna sl. vor:

 

Frjálslyndi flokkurinn                       

Guðjón Arnar Kristjánsson, Ísafirði

Guðni Halldórsson, Borgarnes

Sigurður Ó. Hallgrímsson, Skagaströnd

 

Samfylkingin             

Pétur Tyrfingsson, Reykjavík

 

Sjálfstæðisflokkurinn           

Árni Árnason, Reykjanesbæ

Árni Johnsen, Vestmannaeyjum

Bergþór Ólason, Akranesi

Haukur Þór Hauksson, Garðabæ

Kjartan Þ. Ólafsson, Selfossi

Sigurlaug Hanna Leifsdóttir, Akureyri

Þórður Guðjónsson, Akranesi

 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð            

Heimir Björn Janusarson, Reykjavík

Hörður Þórisson, Reykjavík

Jósep B. Helgason, Akureyri

Paul Nikolov, Reykjavík

Sigurður Ingvi Björnsson, Hvammstanga

Sigurjón Einarsson, Oslo, Noregi

Trausti Aðalsteinsson, Húsavík

Úlfur Björnsson, Hveragerði

Þorsteinn Bergsson, Egilsstöðum

Þorvaldur Þorvaldsson, Reykjavík