Fréttayfirlit

20.03.2009

Útdrættir úr reikningum stjórnmálaflokkanna 2007

Ríkisendurskoðun hefur birt útdrætti úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2007 þar sem m.a. koma fram upplýsingar um framlög til þeirra frá lögaðilum. Gert er ráð fyrir að birta sams konar útdrætti fyrir árið 2008 eigi síðar en næsta haust.

Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra skulu stjórnmálasamtök árlega skila Ríkisendurskoðun reikningum sínum sem í kjölfarið skal birta útdrætti úr þeim. Þar eiga að koma fram upplýsingar um heildartekjur og gjöld, uppruna tekna og helstu stærðir í efnahagsreikningi. Þá skal greina sérstaklega frá afsláttum sem viðkomandi samtök hafa fengið frá markaðsverði vöru eða þjónustu. Enn fremur skal birta nöfn allra lögaðila sem veitt hafa framlög til starfseminnar.

Ríkisendurskoðun hefur nú í samræmi við fyrrnefnd lög birt hér á síðunni útdrætti úr reikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2007. Um er að ræða útdrætti úr reikningum Framsóknarflokksins, Frjálslynda flokksins, Íslandshreyfingarinnar – lifandi lands, Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Upphaflega stóð til að birta útdrættina fyrir síðustu áramót en það tókst ekki því sumir flokkanna náðu ekki að skila uppgjörum sínum innan gefins tímafrests. Ástæðan var sú að samræma þurfti uppgjörstímabil aðildarfélaga þeirra og tók það lengri tíma en ráð var fyrir gert.

Ríkisendurskoðun væntir þess að reikningar flokkanna fyrir árið 2008 berist um mitt þetta ár og að unnt verði að birta útdrætti úr þeim eigi síðar en næsta haust. Gert er ráð fyrir að birta um svipað leyti útdrætti úr reikningum frambjóðenda í prófkjörum ársins.

Útdráttur úr reikningi Framsóknarflokksins 2007

Útdráttur úr reikningi Frjálslynda flokksins 2007

Útdráttur úr reikningi Íslandshreyfingarinnar - lifandi lands 2007

Útdráttur úr reikningi Samfylkingarinnar 2007

Útdráttur úr reikningi Sjálfstæðisflokksins 2007

Útdráttur úr reikningi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2007