Hlutverk

Smelltu á myndina til að stækka hana

Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum Alþingis. Hún er hluti löggjafarvaldsins og þáttur í eftirliti þess með framkvæmdarvaldinu. Meginhlutverk hennar er að endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Forsætisnefnd Alþingis skipar yfirmann stofnunarinnar, ríkisendurskoðanda, til sex ára. Með hliðsjón af lögum um Ríkisendurskoðun, lögskýringargögnum og stöðlum Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana hefur stofnunin skilgreint meginverkefni sín og eru þau talin upp í stikunni hér til vinstri.