Eftirlit með fjármálum tengdum stjórnmálastarfsemi

Ríkisendurskoðun hefur eftirlit með fjármálum stjórnmálasamtaka og frambjóðenda samkvæmt lögum nr. 162/2006.

Lögin skylda stjórnmálasamtök til að skila samstæðureikningi, þ.e. ársreikningi fyrir allar einingar sem undir þau falla, til Ríkisendurskoðunar sem í kjölfarið skal birta útdrátt úr honum. Þá skylda þau frambjóðendur í persónukjöri til að skila stofnuninni uppgjöri um tekjur og kostnað vegna kosningabaráttu. Stofnunin skal síðan birta útdrátt úr slíkum uppgjörum. Reikningur stjórnmálasamtaka skal vera endurskoðaður og áritaður af endurskoðanda en uppgjör frambjóðanda skal vera áritað af endurskoðanda eða bókhaldsfróðum skoðunarmanni.