Ríkisendurskoðun hefur tiltekið eftirlit með fjárreiðum sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, sbr. lög nr. 19/1988. Um er að ræða sjálfseignarstofnanir sem ekki stunda atvinnurekstur, einkum ýmsa styrktar- og minningarsjóði og góðgerðarstofnanir.
Samkvæmt lögum nr. 19/1988 skal Ríkisendurskoðun halda skrá yfir heildartekjur og gjöld, eignir og skuldir allra slíkra aðila, ásamt athugasemdum við framlagða reikninga. Hafi reikningur ekki borist í eitt ár eða hann reynst ófullkominn að einhverju leyti getur sýslumaður, að fengnum tillögum Ríkisendurskoðunar, vísað máli viðkomandi sjóðs til lögreglu til rannsóknar. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki fer með þetta hlutverk samkvæmt reglugerð nr. 1125/2006.
Ársreikningsform vegna ársins 2012
Texti umburðarbréfs Ríkisendurskoðunar til vörsluaðila sjóða og stofnana (sent 30. janúar 2012)
