Lög og reglur

Ríkisendurskoðun starfar samkvæmt lögum um stofnunina, nr. 86/1997. Að auki hefur stofnunin í störfum sínum hliðsjón af stefnuyfirlýsingum og stöðlum Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Enn fremur taka starfsmenn eftir atvikum mið af lögum um endurskoðendur og alþjóðlegum endurskoðunar- og reikningsskilastöðlum. Þá hefur stofnunin sett sér siðareglur.