Stefna

Ríkisendurskoðun hefur mótað sér heildarstefnu sem byggist á aðferðarfræði stefnumiðaðs árangursmats (e. balanced scorecard). Stefnukort stofnunarinnar gildir fyrir tímabilið 2012 til 2015. Við stefnumótunina var m.a. höfð hliðsjón af lögum um stofnunina og stöðlum Alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Stofnunin hefur einnig mótað sér stefnumið í ýmsum málaflokkum, s.s. starfsmanna-, upplýsinga og umhverfismálum. Lesa má um þau með því að smella á valkosti í stikunni hér til vinstri.