Ríkisendurskoðun hefur tvö meginmarkmið með gæðastefnu sinni:
- Að verk stofnunarinnar séu unnin eftir skilgreindum verkferlum sem tryggja gæði þeirra.
- Að ljúka verkum á umsömdum tíma.
Vegna þess hve miklar kröfur eru gerðar til vinnu Ríkisendurskoðunar leggur stofnunin sérstaka áherslu á gæðamat til að bæta frammistöðu sína og árangur. Ávinningur slíks gæðamats réttlætir að veitt sé nokkru fé til þess. Mikilvægt er að árangur gæðakerfisins sé metinn með hliðsjón af kostnaði við það.
Ríkisendurskoðun skal fylgja fastmótuðum aðferðum og vinnubrögðum við eftirfarandi:
- Að staðfesta að gæðakerfið virki á viðunandi hátt.
- Að tryggja gæði endurskoðunarskýrslna og álita.
- Að tryggja framþróun og gæði verka með stöðugu umbótastarfi.