Jafnréttisstefna

I. Jafnrétti karla og kvenna

Almenn markmið
Innan Ríkisendurskoðunar skal jafnrétti kynjanna haft í fyrirrúmi við öll störf og samskipti og skal farið að jafnréttislögum í einu og öllu. Kynna skal starfsfólki jafnréttisstefnu stofnunarinnar og skal endurskoða hana reglulega.

Starfsfólk skal jafnt í störfum sínum sem öðrum samskiptum virða konur og karla jafnt og forðast allt tal og atferli sem er til þess fallið gera lítið úr öðru kyninu eða vanvirða það á nokkurn hátt.

Stjórnendur skulu gæta þess og bera ábyrgð á því að allt starfsfólk fái notið sín án tillits til kynferðis og að sú auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum þess efli starf stofnunarinnar.

Stjórnendur skulu bregðast við ef þeir verða varir við misfellur og vinna markvisst gegn atferli eða viðhorfum sem gætu leitt til aðstöðumunar kvenna og karla á stofnuninni.

Launajafnrétti
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konur og karlar skulu fá jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Þau skulu einnig njóta sömu þóknana, beinna og óbeinna, hvort heldur er með hlunnindum eða öðrum hætti.

Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir konur og karla og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun feli ekki í sér kynjamismunun. Með sömu kjörum er auk launa átt við lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár.

Auglýsingar og ráðning í störf
Í auglýsingum um störf hjá Ríkisendurskoðun skulu störf ekki kyngreind og þess skal gætt við samningu auglýsingar að bæði konur og karlar geti komið til greina í starfið.

Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið við stöðuveitingar.

Stefnt skal að því að halda sem jöfnustu kynjahlutfalli í störfum innan stofnunarinnar og þess gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað eftir kynferði við úthlutun verkefna, tilfærslu eða framgangs í störfum.

II. Kynferðisleg áreitni

Ríkisendurskoðun mun ekki láta kynferðislega áreitni viðgangast á vinnustað sínum. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu.

Með kynferðislegri áreitni er átt við kynferðislega hegðun sem er í senn móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

Sé starfsmanni misboðið í þessu efni ber honum að snúa sér til yfirmanns síns eða starfsmannastjóra og kvarta. Vitni að slíkri hegðun eru jafnframt hvött til að vekja athygli yfirmanns eða starfsmannastjóra á henni. Yfirmanni ber að bregðast við slíkri kvörtun, kanna málið og grípa til viðeigandi ráðstafana.

III. Einelti á vinnustað

Ríkisendurskoðun mun ekki líða einelti, í hvaða mæli eða mynd sem það birtist, á vinnustað sínum. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu.

Með einelti er átt við hvers konar ámælisverða eða síendurtekna ótilhlýðilega háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda leiði slíkur skoðanaágreiningur eða hagsmunaágreiningur ekki til þeirrar háttsemi sem lýst er hér að framan.

Telji starfsmaður sig verða fyrir einelti af einhverju tagi ber honum að snúa sér til yfirmanns síns eða starfsmannastjóra og kvarta. Vitni að slíkri háttsemi eru jafnframt hvött til að vekja athygli yfirmanns eða starfsmannastjóra á henni. Yfirmanni ber að bregðast við slíkum kvörtunum, kanna málið og grípa til viðeigandi ráðstafana.

Jafnréttisáætlun Ríkisendurskoðunar 2012–2015