Upplýsingastefna

1. Ytri upplýsingamiðlun

1.1 Forsendur og markmið

  1. Ríkisendurskoðun (RE) er sjálfstæð og óháð stofnun sem starfar á vegum Alþingis. Meginhlutverk hennar er að endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár.
  2. Niðurstöður athugana RE skal birta opinberlega nema þær varði málefni sem leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls eða ef birting þeirra er talin geta skaðað viðkomandi starfsemi.
  3. Athuganir RE sem sendar eru Alþingi og gerðar opinberar eiga að nýtast þinginu við eftirlit þess með framkvæmdarvaldinu og stuðla að upplýstri umræðu í samfélaginu um þau málefni sem þær lúta að.
  4. Öflug og vönduð ytri upplýsingamiðlun er ein forsenda þess að RE geti rækt hlutverk sitt og náð árangri.
  5. RE hefur frumkvæði að því að miðla upplýsingum um hlutverk sitt og störf.
  6. Ytri upplýsingamiðlun RE hefur að markmiði að:
    1. Upplýsa Alþingi um atriði sem máli skipta fyrir eftirlit þess með framkvæmdarvaldinu
    2. Benda ríkisaðilum á leiðir til að bæta fjármálastjórn og nýtingu almannafjár
    3. Byggja upp og viðhalda traustri ímynd stofnunarinnar í samfélaginu

1.2 Aðferðir og framkvæmd

  1. RE leitast sérstaklega við að laga ytri upplýsingamiðlun sína að þörfum eftirtaldra markhópa:
    1. Þingmanna
    2. Fjölmiðla / almennings
    3. Starfsmanna ráðuneyta og stofnana
    4. Starfsmanna systurstofnana erlendis
  2. Ytri upplýsingamiðlun RE fer einkum fram með eftirtöldum aðferðum:
    1. Miðlun á heimasíðu
    2. Útgáfu skýrslna (á rafrænu formi)
    3. Útsendingu fréttatilkynninga og annars fjölmiðlaefnis
    4. Kynningar- og fræðslufundum
  3. Innihald og framsetning upplýsinga skulu miðuð við þarfir þess markhóps sem um ræðir hverju sinni.
  4. Upplýsingar skulu settar fram á skýru, einföldu og vönduðu nútímamáli. Forðast skal óþarflega sérhæft eða tæknilegt málfar.
  5. Leitast skal við að setja upplýsingar fram á myndrænan hátt þar sem því verður við komið.
  6. Upplýsingafulltrúi stýrir ytri upplýsingamiðlun stofnunarinnar í umboði ríkisendurskoðanda.
  7. Ríkisendurskoðandi og eftir atvikum sviðsstjórar koma fram fyrir hönd stofnunarinnar í fjölmiðlum. Ríkisendurskoðandi getur þó ákveðið undantekningar frá þessari reglu.

1.3 Árangursmat

  1. RE kannar reglulega hvort eða hversu vel markmið ytri upplýsingamiðlunar nást, m.a. með reglulegum viðhorfs- og ímyndarkönnunum. Stofnunin setur sér á hverjum tíma mælanleg markmið um árangur á þessu sviði.

 

2. Innri upplýsingamiðlun

2.1 Forsendur og markmið

  1. Öflug og vönduð innri upplýsingamiðlun er ein forsenda þess að RE geti rækt hlutverk sitt og náð árangri.
  2. Innri upplýsingamiðlun styður við framkvæmd starfsmannastefnu.
  3. Markmið innri upplýsingamiðlunar er að starfsmenn RE hafi á hverjum tíma glöggar upplýsingar um störf hennar, helstu verkefni og annað það sem tengist stofnuninni með beinum hætti.

2.2 Aðferðir og framkvæmd

  1. Greina skal milli upplýsinga sem ætlaðar eru öllum starfsmönnum jafnt og upplýsinga sem sérstaklega eru ætlaðar starfsmönnum einstakra sviða. Laga skal innihald og framsetningu að þeim hópi sem um ræðir hverju sinni.
  2. Innri upplýsingamiðlun fer einkum fram með eftirtöldum aðferðum:
    1. Innri vefsíðu
    2. Starfsmannafundum
    3. Sviðsfundum
  3. Leitast skal við að setja upplýsingar fram á myndrænan hátt þar sem því verður við komið.
  4. Upplýsingafulltrúi stýrir innri upplýsingamiðlun sem beinist jafnt að öllum starfsmönnum.
  5. Sviðsstjórar stýra innri upplýsingamiðlun sem beinist sérstaklega að starfsmönnum þeirra sviða.