Um okkur

Hjá Ríkisendurskoðun starfa 41 manns, 21 kona og 20 karlar. Yfir 85% starfsmanna eru háskólamenntaðir og margir þeirra hafa meistaragráðu. Langflestir eru með próf í viðskiptafræði og fimm eru löggiltir endurskoðendur. Þá starfa tveir lögfræðingar hjá stofnuninni, nokkrir eru með próf í stjórnmála- eða stjórnsýslufræðum, tveir í hugvísindum og einn í bóksafns- og upplýsingafræði. Þrír starfsmenn eru með faggildingu í innri endurskoðun (CIA), einn í endurskoðun upplýsingakerfa (CISA) og einn í opinberri endurskoðun (CGAP). Meðalaldur starfsmanna er um 53 ár. Stofnunin leggur áherslu á að starfsmenn viðhaldi þekkingu sinni og hæfni með markvissri endurmenntun.