Hjá Ríkisendurskoðun starfa 49 manns með mismunandi bakgrunn, menntun og reynslu. Meira en 80% starfsmanna er með háskólapróf, flestir í viðskiptafræði, lögfræði eða félagsvísindum og stór hluti þeirra er með meistarapróf. Um það bil jafnmargar konur og karlar vinna hjá stofnuninni og meðalaldur starfsmanna er um 50 ár. Stofnunin leggur áherslu á að starfsmenn viðhaldi þekkingu sinni og hæfni með markvissri endurmenntun.
