
- Einar Bjarnason var aðalendurskoðandi frá 1949 og fyrsti ríkisendurskoðandinn frá 1955 til 1969.
1874 - Ísland fær sína fyrstu stjórnarskrá, löggjafar- og fjárveitingarvald færist til Alþingis frá Danmörku. Embætti tveggja þingkjörinna yfirskoðunarmanna landsreikninganna stofnuð.
1879 - Endurskoðun landsreikninganna gerð að sjálfstæðu verkefni sem sérstakur starfsmaður, Indriði Einarsson, annast í umboði yfirskoðunarmanna.
1904 - Framkvæmdarvald flyst inn í landið. Stjórnarskrifstofu III í hinu nýstofnaða Stjórnarráði Íslands falið að annast endurskoðun landsreikninganna. Indriði Einarsson verður skrifstofustjóri. Yfirskoðunarmenn landsreikninganna þó áfram kosnir á Alþingi og sinna endurskoðun á vegum þingsins.
1917 - Endurskoðun landsreikninganna flyst til fjármáladeildar Stjórnarráðsins (fjármálaráðuneyti).
1931 - Sérstök löggjöf sett um ríkisbókhald og endurskoðun. Endurskoðunin skilin frá annarri starfsemi fjármálaráðuneytisins. Embætti aðalendurskoðanda ríkisins komið á fót og hann settur beint undir fjármálaráðherra. Jón Guðmundsson ráðinn í embættið.

- Halldór V. Sigurðsson var ríkisendurskoðandi frá 1969 til 1992.
1943 - Björn E. Árnason tekur við af Jóni Guðmundssyni sem aðalendurskoðandi ríkisins.
1949 - Einar Bjarnason tekur við af Birni E. Árnasyni sem aðalendurskoðandi ríkisins.
1955 - Embættisheiti aðalendurskoðanda breytt í ríkisendurskoðanda.
1969 - Ríkisendurskoðun gerð að sérstakri stjórnardeild (stofnun) undir fjármálaráðherra. Halldór V. Sigurðsson skipaður ríkisendurskoðandi.

- Sigurður Þórðarson var ríkisendurskoðandi frá 1992 til 2008.
1987 - Sérstök lög sett um Ríkisendurskoðun og stofnunin færð undir Alþingi til að tryggja sjálfstæði hennar og efla eftirlit löggjafans með framkvæmdarvaldinu. Skoðunarheimildir rýmkaðar og stofnuninni veitt heimild til stjórnsýsluendurskoðunar.
1992 - Sigurður Þórðarson tekur við af Halldóri V. Sigurðssyni sem ríkisendurskoðandi.
1995 - Embætti yfirskoðunarmanna ríkisreiknings lögð niður.
1997 - Ný lög sett um Ríkisendurskoðun. Skoðunarheimildir rýmkaðar og stofnunin fær heimild til að gera úttektir á framkvæmd laga og reglna um umhverfismál (umhverfisendurskoðun).
2008 - Sveinn Arason tekur við af Sigurði Þórðarsyni sem ríkisendurskoðandi.