Ríkisendurskoðun birtir niðurstöður athugana sinna í opinberum skýrslum á rafrænu formi. Niðurstöður eru þó ekki gerðar opinberar ef það er talið geta skaðað viðkomandi starfsemi á einhvern hátt. Að auki hefur stofnunin gefið út ýmis leiðbeiningarrit fyrir stjórnendur og starfsmenn ríkisstofnana. Þá gefur stofnunin út ársskýrslu um störf sín, afrakstur þeirra og árangur. Að auki eru birtar hér á vefnum greinar og erindi eftir starfsmenn stofnunarinnar.
