Vantar reglugerð um styrkveitingar ráðherra

Skýrsla til Alþingis

02.05.2017

Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til forsætisráðuneytis frá árinu 2014 vegna úthlutana af safnliðum fjárlagaárin 2012-14.

Þeir fjárlagaliðir sem þá voru til umfjöllunar hafa nú verið aflagðir og verkefnunum sem þeir tóku til er lokið. Ný lög um opinber fjármál nr. 123/2015 kveða einnig skýrar á um styrkveitingar ráðherra en áður.

Ríkisendurskoðun gerir þó athugasemd við þá afstöðu forsætisráðuneytis að ekki hafi verið tilefni til að það setti sér verklagsreglur um styrkveitingar í samræmi við almennar reglur stjórnsýslulaga og vandaða stjórnsýsluhætti. Stofnunin bendir á að samkvæmt lögum um opinber fjármál hafa ráðherrar heimild til að veita tilfallandi styrki til verkefna á þeim málefnasviðum sem undir þá heyra.  Þá vekur Ríkisendurskoðun athygli á því að samkvæmt sömu lögum skal fjármála- og efnahagsráðherra setja reglugerð um undirbúning, gerð og eftirlit með slíkum styrkjum. Þær reglur hafa ekki enn verið settar og er fjármála- og efnahagsráðuneyti hvatt til að bæta úr því sem fyrst.

Sjá nánar

Mynd með frétt