Brýnt að draga úr lyfjakostnaði

Skýrsla til Alþingis

24.02.2017

Ríkisendurskoðun ítrekar ekki ábendingar sínar til velferðarráðuneytis frá árinu 2014 um leiðir til að stemma stigu við hækkandi lyfjakostnaði á Íslandi.

Stofnunin bendir þó á að lyfjakostnaður Sjúkratrygginga Íslands var 15,1 ma.kr. árið 2015. Heilbrigðisstofnanir hafa ótvírætt tækifæri til að draga úr þeim kostnaði með fjölþjóðlegu samstarfi við lyfjaútboð og er velferðarráðuneyti hvatt til að beita sér fyrir þátttöku Landspítala í slíku samstarfi.

Í fyrri skýrslu Ríkisendurskoðunar var velferðarráðuneyti annars vegar hvatt til að leita frekari leiða til að fá aðgang að stærri lyfjamörkuðum með það að markmiði að draga úr lyfjakostnaði. Ráðuneytið bendir á með nýjum lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup hafi dregið úr þeim hindrunum sem áður voru í vegi fjöl- eða alþjóðlegs samstarfs um útboð lyfjakaupa.

Hins vegar var ráðuneytinu bent á mikilvægi þess að skilgreina fyrirfram hvernig meta ætti árangur af viðamiklum breytingum á heilbrigðiskerfinu. Ríkisendurskoðun telur að þau markmið, tímasettar aðgerðir og árangursmælikvarðar sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2017 og í lyfjastefnu ráðuneytisins sýni að ráðuneytið hafi komið til móts við þessa ábendingu.

Sjá nánar