Starfsáætlun stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar árið 2016

Almennt

18.12.2015

Á tímabilinu 2016‒18 munu úttektir stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar aðallega beinast að málaflokkum sem heyra undir fjögur stærstu ráðuneytin. Meðal fyrirhugaðra verkefna á næsta ári eru úttektir á geðheilbrigðismálum barna og unglinga, Fjársýslu ríkisins og Sérstökum saksóknara.

Stjórnsýsluendurskoðun miðar að því að kanna meðferð og nýtingu almannafjár, hvort hagkvæmni og skilvirkni er gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja ríkisins. Jafnframt er kannað hvort viðkomandi starfsemi sé í samræmi við lög og reglur og skili þeim árangri sem að er stefnt. Samkvæmt starfsáætlun fyrir tímabilið 2016‒18 munu úttektir stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar þá aðallega beinast að málaflokkum sem heyra undir velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og innanríkisráðuneytið. Ástæðan er sú að langstærstur hluti ríkisútgjalda (um 80%) er vegna þessara fjögurra ráðuneyta. Málefni annarra ráðuneyta verða þó einnig til skoðunar eftir því sem þörf þykir.

Megináhersla verður lögð á hefðbundnar stjórnsýsluúttektir á einstökum stofnunum, verkefnum og málaflokkum. Meðal fyrirhugaðra verkefna á næsta ári eru úttektir á geðheilbrigðismálum barna og unglinga, Fjársýslu ríkisins, Vegagerðinni og Sérstökum saksóknara, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þá vinna starfsmenn stjórnsýslusviðs jafnan fjölmargar eftirfylgniúttektir á hverju ári þar sem kannað er hvernig brugðist hefur verið við ábendingum eldri skýrslna.

Á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar starfa nú sjö manns með mismunandi menntun, s.s. í viðskiptafræði, stjórnmálafræði, heimspeki og íslensku. Sviðið lauk samtals 29 opinberum skýrslum árið 2015 sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár, þar af voru átta frumúttektir og 21 eftirfylgniúttekt. Í þessum skýrslum eru settar fram fjölmargar ábendingar til stjórnvalda og stofnana um úrbætur. Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs er Þórir Óskarsson.