Ríkisendurskoðun ítrekar ábendingu um að bílanefnd verði lögð niður

Skýrsla til Alþingis

10.04.2015

Árið 2012 lagði Ríkisendurskoðun til að bílanefnd ríkisins yrði lögð niður. Nú þremur árum síðar ítrekar stofnunin þessa ábendingu.Bílanefnd ríkisins hefur umsjón með bifreiðamálum ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja ríkisins. Ef slíkir aðilar hyggjast kaupa eða taka bifreiðar á rekstrarleigu þurfa þeir að fá samþykki nefndarinnar. Einnig þarf hún að samþykkja alla aksturssamninga sem gerðir eru við ríkisstarfsmenn. Þá framfylgir nefndin reglum um merkingar ríkisbifreiða og reglum um innkaup og endurnýjun ráðherrabíla.

Árið 2012 benti Ríkisendurskoðun á að starfsemi bílanefndar væri á skjön við ábyrgð forstöðumanna á rekstri stofnana. Nefndin væri óþarfur milliliður í nútíma stjórnsýslu. Því lagði Ríkisendurskoðun til að nefndin yrði lögð niður og reglugerð um starfsemi hennar numin úr gildi. Kaup eða rekstrarleiga stofnana á bifreiðum ættu að vera samkvæmt svokölluðum rammasamningum Ríkiskaupa.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar er framangreind ábending ítrekuð. Þar kemur einnig fram að fjármála- og efnahagsráðuneytið var og er ósammála henni. Hins vegar telji ráðuneytið hugsanlegt að fyrirkomulagi bifreiðamála ríkisins verði breytt í kjölfar fyrirhugaðrar endurskoðunar á lögum um opinber innkaup og gildistöku laga um opinber fjármál.

Samstarfsnefnd verði lögð niður
Árið 2012 lagði Ríkisendurskoðun einnig til að samstarfsnefnd sem tekur afstöðu til umsókna um niðurfellingu vörugjalds á ökutækjum björgunarsveita yrði lögð niður. Eðlilegt væri að Tollstjóri tæki ákvarðanir í þessu efni.

Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að fjármála- og efnahagsráðuneytið telji ekkert því til fyrirstöðu að endurskoða fyrirkomulag á afgreiðslu umræddra umsókna komi til þess að bílanefnd verði lögð niður. Meðan hún sé starfandi sé hins vegar rétt að fyrirkomulagið verði óbreytt.
Ríkisendurskoðun er ósammála þessu mati og ítrekar ábendinguna.

Sjá nánar