Áætlun um stjórnsýsluúttektir ársins 2015

Almennt

17.12.2014

Á tímabilinu 2013‒15 beinast stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar aðallega að málaflokkum sem heyra undir fjögur stærstu ráðuneytin. Meðal fyrirhugaðra verkefna á næsta ári eru úttektir á málefnum útlendinga/innflytjenda, rekstri og mannauði sendiskrifstofa Íslands, stöðu barnaverndarmála, geðheilbrigðismálum unglinga og ríkisábyrgðum. Stjórnsýsluendurskoðun miðar að því að kanna meðferð og nýtingu almannafjár, hvort hagkvæmni og skilvirkni er gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja ríkisins. Jafnframt er kannað hvort viðkomandi starfsemi sé í samræmi við lög og reglur og skili þeim árangri sem að er stefnt. Á tímabilinu 2013‒15 beinast stjórnsýsluúttektir Ríkisendurskoðunar aðallega að málaflokkum sem heyra undir velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og innanríkisráðuneytið. Ástæðan er sú að langstærstur hluti ríkisútgjalda er vegna þessara fjögurra ráðuneyta. Málefni annarra ráðuneyta verða þó einnig til skoðunar eftir því sem þörf þykir.

Megináhersla verður lögð á hefðbundnar stjórnsýsluúttektir á einstökum stofnunum, verkefnum og málaflokkum. Meðal fyrirhugaðra verkefna á næsta ári eru úttektir á málefnum útlendinga/innflytjenda, rekstri og mannauði sendiskrifstofa Íslands, stöðu barnaverndarmála, geðheilbrigðismálum unglinga og ríkisábyrgðum, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar starfa átta manns með mismunandi menntun og bakgrunn, þar af fimm viðskiptafræðingar, tveir stjórnmálafræðingar og einn íslenskufræðingur. Sviðið lauk samtals 30 opinberum skýrslum árið 2014 sem er metfjöldi á einu ári. Í þessum skýrslum eru settar fram fjölmargar ábendingar til stjórnvalda og stofnana um úrbætur. Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs er Kristín Kalmansdóttir viðskiptafræðingur.