15 skýrslur í vinnslu

Almennt

05.10.2012

Um þessar mundir eru 15 skýrslur í vinnslu hjá Ríkisendurskoðun. Frá ársbyrjun 2007 hafa samtals átta formlegar skýrslubeiðnir borist stofnuninni frá Alþingi. Einni var hafnað en af hinum sjö hefur öllum nema einni verið svarað með fullbúinni skýrslu. Af samtals 84 skýrslum og sjálfstæðum ábendingum sem Ríkisendurskoðun hefur sent Alþingi frá ársbyrjun 2010 hafa þingnefndir sent frá sér skrifleg álit um 24.Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi um skýrslubeiðnir þess til Ríkisendurskoðunar og afdrif þeirra. Þingmaðurinn spyr hversu margar slíkar beiðnir hafi borist Ríkisendurskoðun sl. fimm ár og hversu mörgum þeirra hafi verið svarað með fullbúinni skýrslu. Þá spyr Ólína hversu mörgum beiðnum sem stofnuninni hafi borist sl. 10 ár sé ósvarað með öllu, þ.e. án þess að skýrslugerð sé hafin, og hversu margar skýrslur liggi fyrir í óafgreiddum drögum hjá stofnuninni.

Frá ársbyrjun 2007 hafa Ríkisendurskoðun borist samtals átta formlegar skýrslubeiðnir frá Alþingi. Einni var hafnað en hún varðaði forsendur fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga. Af hinum sjö hefur öllum verið svarað með fullbúnum skýrslum nema einni. Skýrslugerð vegna hennar er þó langt komin en þar er um að ræða athugun á ráðstöfun framlaga ríkins til æskulýðsmála. Engri skýrslubeiðni frá sl. 10 árum er ósvarað með öllu, þ.e. án þess að skýrslugerð sé hafin.
Um þessar mundir eru samtals 15 skýrslur í vinnslu hjá stofnuninni. Þar af eru tvær samkvæmt formlegri beiðni frá Alþingi: fyrrnefnd skýrsla um framlög til æskulýðsmála og önnur um innleiðingu fjárhagsuppýsingakerfis fyrir ríkið.

Frá ársbyrjun 2010 hefur Ríkisendurskoðun sent samtals 84 skýrslur og sjálfstæðar ábendingar til Alþingis sem jafnframt hafa verið birtar opinberlega. Leit í gagnagrunni Alþingis, sem aðgengilegur er á vefsíðu þess, leiðir í ljós að nefndir þingsins hafa skilað skriflegu áliti um 24 af þessum skýrslum eða ábendingum. Auk skýrslubeiðna fær Ríkisendurskoðun á hverju ári beiðnir frá Alþingi um að gefa álit sitt á lagafrumvörpum, m.a. til fjárlaga og fjáraukalaga. Þessar beiðnir og viðeigandi álit sem og ýmsar greinargerðir sem stofnunin vinnur samkvæmt óskum fjárlaganefndar eru ekki inni í þessum tölum.