10 stjórnmálasamtök skiluðu reikningum fyrir 2011 á réttum tíma

Stjórnmálastarfsemi

02.10.2012

10 stjórnmálasamtök höfðu skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2011 til Ríkisendurskoðunar þegar lögbundinn skilafrestur rann út hinn 1. október sl.Um er að ræða eftirtalin stjórnmálasamtök:

Borgarahreyfingin, Framsóknarflokkurinn, Hreyfingin, Hægri-grænir, flokkur fólksins, Samfylkingin, Samtök fullveldissinna, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Þinghópur Hreyfingarinnar og Þinglistinn, framboð óháðra í Norðurþingi

Unnið er að því að fara yfir ársreikninga þeirra stjórnmálasamtaka sem skiluðu skömmu áður en fresturinn rann út og vinna útdrátt úr þeim í samræmi við lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka. Útdrættirnir verða birtir á hér á síðunni á næstu dögum.