Sameining ráðuneyta vel af hendi leyst

Skýrsla til Alþingis

22.02.2011

Ríkisendurskoðun telur að sameining heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis hafi um flest verið vel af hendi leyst.Í byrjun þessa árs tók velferðarráðuneyti til starfa eftir sameiningu heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að um flest hafi verið vel staðið að undirbúningi og framkvæmd sameiningarinnar. Ákvörðun um hana hafi verið tekin að vel athuguðu máli, markmið hennar hafi verið skýr sem og verkstjórn og verkaskipting í sameiningarferlinu.

Engu að síður telur Ríkisendurskoðun að áætla þurfi kostnað sameiningarinnar betur en gert hefur verið. Einnig sé brýnt að ljúka langtímastefnumótun og gerð verklagsreglna og rekstraráætlunar fyrir hið nýja ráðuneyti.  Þá bendir stofnunin á mikilvægi þess að áfram verði stutt við starfsfólk ráðuneytisins í því breytingaferli sem framundan er.

Ríkisstjórnin kynnti haustið 2009 áform um að endurskipuleggja opinbera þjónustu og sameina stofnanir. Í kjölfarið ákvað Ríkisendurskoðun að fylgjast með því hvernig þessi áform myndu ganga fram. Skýrslan um sameiningu heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis er sú fimmta sem Ríkisendurskoðun gefur út um sameiningu í ríkisrekstri. Áður eru komnar út skýrslur um sameiningu skattumdæma landsins, Þjóðskrár og Fasteignaskrár, Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis.

Sjá nánar