Skil frambjóðenda á upplýsingum um kostnað

Stjórnmálastarfsemi

04.11.2009

Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit um skil frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri vegna síðustu alþingiskosninga á kostnaðarupplýsingum til stofnunarinnar. Af samtals 318 frambjóðendum sem tóku þátt í prófkjöri eða forvali innan stjórnmálaflokkanna vegna kosninganna hafa nú 281 skilað upplýsingum um kostnað sinn til Ríkisendurskoðunar. Þar af hafa 43 frambjóðendur skilað fjárhagslegu uppgjöri en 238 yfirlýsingu um að kostnaður þeirra hafi ekki verið umfram 300 þús.kr. Samtals eiga því 37 frambjóðendur enn eftir að skila en samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda er þeim skylt að gera það.

Unnið er að því að fara yfir uppgjör þeirra frambjóðenda sem höfðu meiri kostnað af kosningabaráttu en 300. þús. kr. Ríkisendurskoðun mun síðar í þessum mánuði birta útdrátt úr þessum uppgjörum eins og fyrrnefnd lög gera ráð fyrir.