Nýr ríkisendurskoðandi

Almennt

01.07.2008

Í dag, 1. júlí 2008, afhenti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, Sveini Arasyni skipunarbréf í embætti ríkisendurskoðanda. Samkvæmt lögum um Ríkisendurskoðun er skipunin til sex ára.

Sveinn Arason (f. 1948) lauk kandídatsprófi í viðskiptafræðum árið 1972 og hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 1976. Hann hefur starfað við Ríkisendurskoðun frá 1972, lengst af sem skrifstofustjóri á endurskoðunarsviði stofnunarinnar. Sveinn var norrænn tengiliður Ríkisendurskoðunar frá 1987 til 1992 og sat í endurskoðunarnefnd Félags löggiltra endurskoðenda frá 2000 til 2002. Þá hefur hann setið í endurskoðendaráði EFTA (EFTA Board of Auditors) frá 1992. Sveinn er kvæntur Jónu Möller, aðstoðarskólastjóra í Kópavogsskóla, og eiga þau tvær dætur.

Sveinn Arason er þriðji maðurinn til að gegna stöðu ríkisendurskoðanda frá því að Ríkisendurskoðun varð sjálfstæð stofnun á vegum Alþingis 1. janúar 1987. Aðrir eru þeir Halldór V. Sigurðsson (til 1992) og Sigurður Þórðarson (1992-2008).