Fyrirmyndarstofnun ársins

Almennt

17.03.2022

Þriðja árið í röð er Ríkisendurskoðun veitt viðurkenning sem fyrirmyndarstofnun ársins í árlegri könnun Sameykis stéttarfélags á stofnun ársins.

Guðmundur Björgvin Helgason, starfandi ríkisendurskoðandi, veitti viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn í gær en Ríkisendurskoðun varð í 2. sæti í flokki meðalstórra stofnana. Þetta var í sautjánda sinn sem könnun á ríkisstofnun ársins er gerð og er valið byggt á svörum rúmlega 13 þúsund starfsmanna í einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins.

Sjá nánar

Mynd með frétt