Úttekt um Samkeppniseftirlitið kynnt

Skýrsla til Alþingis

24.08.2022

Ríkisendurskoðun hefur lokið úttekt á starfsemi Samkeppniseftirlitsins sem byggði á beiðni Alþingis frá 19. maí 2021. Fulltrúar embættisins kynntu niðurstöður úttektarinnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis fyrr í dag.

Í úttekt Ríkisendurskoðunar eru lagðar fram tillögur til úrbóta í átta liðum. Samkeppniseftirlitið þarf í fyrsta lagi að formfesta betur skipulag innra eftirlits og innleiða innri endurskoðun í samræmi við ákvæði laga. Embættið hvetur stofnunina til að vinna áfram að þróun aðgengilegra leiðbeininga og hagnýtra upplýsinga um samkeppnismál og ljúka endurskoðun bæði málsmeðferðar- og verklagsreglna. Þá er mikilvægt að reglubundið mat á ábata af starfsemi Samkeppniseftirlitsins verði nýtt við skilgreiningu áherslna, markmiða og árangursmælikvarða til framtíðar. 

Ríkisendurskoðun telur að menningar- og viðskiptaráðuneyti þurfi í samstarfi við Samkeppniseftirlitið að greina með ítarlegri hætti áhrif af breytingum á veltumörkum í samrunamálum. Þá þurfa ráðuneytið og stofnunin að leggja mat á forsendur, tilhögun og framkvæmd ákvæða samkeppnislaga um samrunagjald og taka möguleg brot samrunaaðila við upplýsingagjöf í samrunatilkynningum til ítarlegrar skoðunar. 

Að lokum telur Ríkisendurskoðun að Samkeppniseftirlitið þurfi í samvinnu við ráðuneytið að kanna hvaða leiðir séu helst færar til að skýra heimild fyrir skipun eftirlitsaðila vegna sátta á grundvelli samkeppnislaga og útfæra nánar verklagsreglur um störf þeirra. 

Sjá nánar skýrslu Ríkisendurskoðunar um Samkeppniseftirlitið
 

Mynd með frétt