Ársreikningar stjórnmálasamtaka

Stjórnmálastarfsemi

18.10.2022

Ríkisendurskoðandi vekur athygli á að stjórnmálasamtökum sem bjóða fram í kosningum til Alþingis og sveitarstjórna ber að skila ársreikningum sínum vegna ársins 2021 til Ríkisendurskoðunar fyrir 1. nóvember nk. sbr. lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. 

Í kjölfarið birtir ríkisendurskoðandi ársreikningana eins fljótt og unnt er. Að auki ber að birta nöfn allra lögaðila sem veita framlög til stjórnmálastarfsemi sem og fjárhæð þeirra og nöfn einstaklinga sem hafa veitt framlög sem metin eru á meira en 300.000 kr.
 

Mynd með frétt