Skýrsla Ríkisendurskoðunar stendur óhögguð

Skýrsla til Alþingis

24.11.2022

Í kjölfar umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna daga um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka 22. mars vill embættið koma eftirfarandi á framfæri:  

Við vinnslu og í umsagnarferli skýrslu Ríkisendurskoðunar voru upplýsingar og athugasemdir sem fram komu af hálfu Bankasýslu ríkisins hafðar til hliðsjónar og tekið tillit til atriða sem embættinu þótti eiga rétt á sér og vörðuðu efni skýrslunnar og afmörkun hennar. Skýrslan stendur því óhögguð þrátt fyrir þá greinargerð sem Bankasýslan birti 16. nóvember sl. og þær athugasemdir sem stofnunin hefur kosið að gera að umfjöllunarefni eftir birtingu hennar. Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis með fjármála- og efnahagsráðuneyti í gær svaraði fjármála- og efnahagsráðherra aðspurður að samskipti við Ríkisendurskoðun í úttektarferlinu hefðu verið fagmannleg og að engin ástæða sé að hans mati til að draga í efa hæfni eða færni Ríkisendurskoðunar til að fjalla um málið.

Ríkisendurskoðun hafnar aðdróttunum ákveðinna fjölmiðla síðustu daga um að annarleg sjónarmið hafi ráðið för við úttektarvinnu embættisins. Fullyrt hefur verið m.a. að umfjöllun Ríkisendurskoðunar um tilboðabók söluferlisins byggi á misskilningi embættisins. Það er rangt. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að svör Bankasýslu ríkisins til bæði embættisins og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í maí sl. byggðu á umræddu Excel-skjali sem innihélt marga annmarka en ekki uppfærðri og villulausri útgáfu þess. Bankasýslan áttaði sig ekki á þeirri staðreynd fyrr en í umsagnarferli úttektarinnar í október sl. Gögn málsins sýna svo ekki verður um villst að Bankasýslan var, líkt og kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar, ekki að fullu meðvituð um rauneftirspurn fjárfesta þegar ákvörðun um leiðbeinandi lokaverð var tekin að kvöldi 22. mars sl. Ekki er um neinn misskilning af hálfu Ríkisendurskoðunar að ræða.

Mynd með frétt