Ársreikningar stjórnmálasamtaka 2021

Stjórnmálastarfsemi

12.01.2023

Samkvæmt 9. gr. laga nr. 162/2006, um starfsemi stjórnmálasamtaka, ber stjórnmálasamtökum að skila ársreikningi fyrir 1. nóvember ár hvert. Í kjölfarið skal ríkisendurskoðandi birta ársreikninga stjórnmálasamtaka eins fljótt og unnt er. Að auki ber að birta nöfn allra lögaðila sem veita framlög til stjórnmálastarfsemi sem og fjárhæð þeirra og nöfn einstaklinga sem hafa veitt framlög sem metin eru á meira en 300.000 kr.

Ríkisendurskoðun hefur nú yfirfarið ársreikninga stjórnmálasamtaka sem borist hafa embættinu og eftir atvikum kallað eftir skýringum og leiðréttingum. Þeir ársreikningar sem uppfylla skilyrði framangreindra laga sem og leiðbeininga Ríkisendurskoðunar um reikningshald stjórnmálasamtaka og skil þeirra á upplýsingum til Ríkisendurskoðunar hafa verið birtir.

Sjá nánar
 

Mynd með frétt