Fyrirmyndarstofnun ársins

Almennt

17.02.2023

Fjórða árið í röð er Ríkisendurskoðun kjörin fyrirmyndarstofnun í árlegri könnun Sameykis stéttarfélags á stofnun ársins.

Ríkisendurskoðun varð í 4. sæti í flokki meðalstórra stofnana en þetta var í átjánda sinn sem könnun á ríkisstofnun ársins er gerð. Er valið byggt á svörum rúmlega 16 þúsund starfsmanna í einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins.

Ríkisendurskoðun hefur undanfarin ár verið í einu af fjórum efstu sætunum í sínum flokki, sem embættið og starfsfólk þess er afar stolt af:

4. sæti árið 2022
2. sæti árið 2021
4. sæti árið 2020
1. sæti árið 2019

Mynd með frétt