Breytt verklag við útgreiðslu framlaga til stjórnmálasamtaka styrkir hlítni við lög

Skýrsla til Alþingis

02.02.2026

Ríkisendurskoðun telur að breytt verklag fjármála- og efnahagsráðuneytis stuðli að því að ákvæði laga séu virt þegar ráðuneytið greiðir út framlög til stjórnmálasamtaka.

Samkvæmt lögum nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka þurfa stjórnmálasamtök m.a. að vera skráð í svokallaða stjórnmálasamtakaskrá til að geta hlotið framlög úr ríkissjóði. Í ársbyrjun 2025 komu fram ábendingar um að fjármála- og efnahagsráðuneyti hefði greitt framlög til stjórnmálasamtaka sem ekki uppfylltu fyrrnefnt skilyrði. Athugun ráðuneytisins staðfesti þetta. Í ljós kom að við greiðslu ríkisframlaga til stjórnmálasamtaka árið 2022 hafði láðst að kanna hvort þau væru skráð í stjórnmálasamtakaskrá. 

Í febrúar 2025 fór ráðuneytið þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún kannaði og legði mat á viðbrögð ráðuneytisins í kjölfar umræddra ábendinga. Í niðurstöðum athugunar Ríkisendurskoðunar kemur fram að ráðuneytið hafi nú uppfært verkferil sinn fyrir þessar greiðslur. Að mati Ríkisendurskoðunar er breytt verklag ráðuneytisins til þess fallið að styrkja hlítni við ákvæði laga nr. 162/2006. 

Þrír mismunandi ríkisaðilar sjá um að greiða framlög til stjórnmálasamtaka: Alþingi, dómsmálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Ríkisendurskoðun telur að kanna eigi hvort rétt sé að fela Fjársýslunni að annast framkvæmd þessara greiðslna. Með því megi bæta yfirsýn og auka hagkvæmni og skilvirkni. 

Loks hvetur Ríkisendurskoðun Alþingi og stjórnvöld til að kanna kosti þess að innleiða rafrænt umsóknarkerfi vegna framlaga úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka.

Niðurstöður athugunar Ríkisendurskoðunar