Viðbrögð við ábendingum um málefni Landspítala könnuð

Almennt

04.02.2026

Ríkisendurskoðun fylgir eftir ábendingum sem settar eru fram í stjórnsýsluúttektum embættisins með skipulegum hætti í samræmi við viðurkennda endurskoðunarstaðla. Að 6–12 mánuðum liðnum frá birtingu skýrslu fer fram fyrri eftirfylgni þar sem leitast er við að kanna hvort viðkomandi aðilar vinni með markvissum hætti að úrbótum í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar. Að jafnaði er niðurstöðum og ábendingum embættisins svo fylgt eftir með ítarlegri hætti þremur árum eftir að skýrsla er birt.

Ríkisendurskoðun hefur nú lokið fyrri eftirfylgni með ábendingum tveggja skýrslna sem varða málefni Landspítala. Annars vegar er um að ræða skýrsluna Landspítali. Fjármögnun og áætlanagerð, sem birt var í júní 2024, og hins vegar skýrsluna Landspítali. Mönnun og flæði sjúklinga sem birt var í júlí á síðasta ári.

Í ljós kom að Landspítali og heilbrigðisráðuneyti vinna nú þegar að úrbótum sem komið gætu til móts við þrjár af fimm ábendingum fyrrnefndu skýrslunnar. Um er að ræða ábendingar um að auka vægi og sýnileika þjónustutengdrar fjármögnunar (DRG), byggja upp þekkingu á slíkri fjármögnun innan heilbrigðiskerfisins og auka áherslu á greiningu gagna um rekstur og starfsemi spítalans. Úrbætur vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar um endurskoðun fjárfestingarframlaga til spítalans og bætta framsetningu upplýsinga í ársskýrslum ráðherra eru mun styttra á veg komnar. Af viðbrögðum heilbrigðisráðuneytis að dæma mun ekki verða komið til móts við þessar ábendingar á næstunni nema með aðkomu og atbeina fjármála- og efnahags­ráðuneytis.

Í síðarnefndu skýrslunni voru lagðar fram samtals þrettán ábendingar til Landspítala, heilbrigðisráðuneytis og félags- og húsnæðismála­ráðuneytis. Þrátt fyrir að einungis sex mánuðir séu frá útgáfu skýrslunnar hefur nú þegar verið komið til móts við ellefu ábendingar. Í þeim tilfellum er þó enn of snemmt að segja til um endanlegan árangur boðaðra aðgerða og áætlana. Hvað varðar þær  ábendingar sem eftir standa telur Ríkisendurskoðun að ekki hafi verið sýnt fram á með afdráttarlausum hætti að unnið sé á markvissan hátt að úrbótum. Þar er annars vegar um að ræða ábendingu embættisins um að LSH þurfi að tryggja betur samræmt vaktaskipulag og bæta miðlægt eftirlit með vinnufyrirkomulagi þvert á spítalann. Hins vegar ábendingu að heilbrigðisráðuneyti þurfi að gera úrbætur á framsetningu og framkvæmd aðgerðaáætlana heilbrigðisstefnu og styrkja yfirstjórn heilbrigðisþjónustunnar þvert á málefnasvið.  

Ríkisendurskoðun mun fylgja báðum þessum skýrslum eftir með ítarlegri hætti þegar u.þ.b. þrjú ár verða liðin frá útgáfu þeirra.