02.02.2026
Á síðasta ári komu fram ábendingar um að fjármála- og efnahagsráðuneyti hefði greitt framlög til stjórnmálasamtaka sem ekki uppfylltu skilyrði laga til að hljóta slík framlög. Athugun ráðuneytisins staðfesti þetta. Í ljós kom að ráðuneytinu hafði láðst að kanna hvort stjórnmálasamtök uppfylltu öll skilyrði til að hljóta ríkisframlög. Í kjölfarið uppfærði ráðuneytið verkferil sinn vegna útgreiðslu slíkra framlaga. Að mati Ríkisendurskoðunar er breytt verklag til þess fallið að styrkja hlítni við ákvæði laga, þ.m.t. hvað varðar skilyrði sem stjórnmálasamtök þurfa að uppfylla til að fá framlög úr ríkissjóði.
Verklag og framkvæmd fjármála- og efnahagsráðuneytis vegna greiðslna til stjórnmálasamtaka (pdf)