Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna – Innleiðing og framkvæmd

10.06.2026

Vorið 2025 ákvað Ríkisendurskoðun að eigin frumkvæði að hefja stjórnsýsluúttekt á innleiðingu og framkvæmd laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið var m.a. að skoða hvernig innleiðingu laganna hefði miðað og hvaða áskoranir stofnanir og sveitarfélög hefðu mætt við innleiðingu og framkvæmd þeirra. Niðurstöður eru settar fram í þessari skýrslu. Þar er einnig að finna samtals sex ábendingar til stjórnvalda um úrbætur sem lúta að framkvæmd laganna og fleiri þáttum.

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna - Innleiðing og framkvæmd

(pdf)

Mynd með færslu

Útdráttur skýrslu

Ábendingar til mennta- og barnamálaráðuneytis:

1. Bæta þarf yfirsýn um stöðu barna og kortleggja hvað þarf til að auka farsæld barna 

Stjórnvöld þurfa að greina markvisst hvaða hindranir standa í vegi fyrir því að börn og forsjáraðilar fái þjónustu við hæfi þegar hennar er þörf. Niðurstöður slíkrar greiningar ætti að nýta við ákvarðana­töku og forgangsröðun aðgerða sem eiga að auka farsæld barna og ná mark­miði farsældarlaganna.

2. Skilgreina þarf hlutlæga árangurs­mæli­kvarða sem fylgt er eftir reglulega

Mennta- og barnamálaráðuneyti þarf að skilgreina hlutlæga árangursmælikvarða svo að hægt sé að meta hvort ávinn­ingur sé af þeirri kerfisbreytingu sem lögin fela í sér.

3. Setja þarf á laggirnar stafrænt kerfi um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna

Mikilvægt er að útbúin verði sameiginleg stafræn lausn, tengd gagna­grunni í umsjón Barna- og fjölskyldustofu, til að tryggja örugga miðlun persónuupplýsinga. Auk þess að auðvelda miðlun gagna gæti slík lausn boðið upp á skilvirkari og öruggari sam­skipti, bæði milli þjónustuveitenda og við notendur þjón­ustunnar.

4. Skýra þarf aðkomu veitenda almennrar þjónustu

Skýra þarf hlutverk og aðkomu þeirra sem veita börnum almenna þjónustu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Taka þarf ákvörðun um í hvaða formi þeirra aðkoma getur verið að stuðnings­teymum og hverjum beri að greiða fyrir vinnuframlagið vegna samþættingar sé það umfram þá þjónustu sem þegar er veitt.

Ábending til mennta- og barnamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Barna- og fjölskyldustofu:

5. Efla þarf þjónustuinnviði

Eigi markmið laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að raungerast verður að bæta þjónustu sem börnum og fjölskyldum þeirra stendur til boða og bæta tímanlegt aðgengi að úrræðum. Skortur á viðeigandi þjónustu og úrræðum sem henta ólíkum börnum og löng bið eru hindrun í þessu sambandi.

Ábending til forsætisráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis og heilbrigðis­ráðuneytis:

6. Endurskoða þarf fyrirkomulag og skipulag vímuefna­meðferðar barna og ungmenna

Stjórnvöld þurfa, undir forystu forsætisráðuneytis og í samvinnu mennta- og barnamálaráðuneytis og  heilbrigðis­­ráðuneytis, að taka til skoðunar undir hvaða ráðuneyti meðferð og þjónusta við börn með vímuefnavanda skuli tilheyra. Við endur­skoðun þessa fyrirkomulags er nauðsynlegt að tryggja að ávallt sé til staðar næg þekking og reynsla á vímuefnavanda barna og ungmenna og að samvinna og samfella sé milli heilbrigðis- og félagskerfis. Á sama tíma þarf að tryggja heilbrigðis­þjónustu og aðkomu heilbrigðis­starfs­fólks með viðeigandi hætti í meðferðar­úrræðum fyrir börn á vegum Barna- og fjölskyldustofu.