Stofnanir ráðuneyta – fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni (hraðúttekt)

22.10.2026

Þessi hraðúttekt veitir yfirlit um stofnanakerfið í árslok 2025 samanborið við árslok 2020 og þróun þess fram til 1. júlí 2026. Einnig er gerð grein fyrir stefnumótun stjórnvalda um umbætur á stofnanakerfinu, verklagi í tengslum við sameiningar stofnana og áherslu stjórnvalda á sam vinnu milli þeirra. Hraðúttektin var unnin að frumkvæði Ríkisendurskoðunar samhliða eftirfylgni með skýrslu embættisins um sama efni sem birt var árið 2022 (Stofnanir ríkisins – fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni). 

Stofnanir ráðuneyta – fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni (pdf)

Mynd með færslu

Útdráttur skýrslu

Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar Stofnanir ríkisins. Fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni (2022) kom fram að áform stjórnvalda um hagræðingu og eflingu ríkisstofnana á árunum 2005–2015 gengu aðeins eftir að hluta til. Fjöldi stofnana hefði íþyngjandi áhrif á eftirlit ráðuneyta með stofnunum sínum en því til viðbótar þyrftu ráðuneytin að hafa eftirlit með fjölda annarra fjárlagaviðfanga, m.a. vegna verkefna og samninga við hlutafélög og sjálfseignarstofnanir. Frá árinu 2021 hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á umbætur á stofnanakerfi ráðuneyta, m.a. með fækkun smærri stofnana, sameiningum og eftir atvikum niðurlagningu þeirra. Stofnunum ráðuneyta fækkaði um 12 frá árslokum 2020 til loka árs 2025 eða úr 155 í 143. Fyrirséð er að þeim muni fækka enn frekar á árinu 2026. Í kjölfar lagabreytinga og sameininga mun stofnunum fækka um a.m.k. 16 á árinu 2026 og hefur þeim þá í heildina fækkað um 28 frá árinu 2020. 
Það jafngildir u.þ.b. fimmtungs fækkun (18,1%). Áform eru uppi um frekari fækkun stofnana á komandi misserum. 

Í árslok 2025 nam hlutfall lítilla stofnana, sem telja 20 stöðugildi eða færri, 30,1% af heildarfjölda (43 af 143), samanborið við 28,4% (44 af 155) árið 2020. Það sem af er árinu 2026 er fyrirséð að stofnunum í þessum stærðarflokki fækki um átta. Hvað varðar stofnanir sem telja 21–50 stöðu gildi þá fækkaði þeim úr 41 í 29 á tímabilinu og er fyrirséð að þeim fækki um fimm til viðbótar á árinu 2026. Ríkisendurskoðun telur ríka ástæðu til að kanna frekari möguleika á sameiningum smæstu stofnananna með hagkvæmni og skilvirkni að leiðarljósi. 

Þrátt fyrir framangreindan árangur vekur athygli að fallið hefur verið frá nokkrum fyrirhuguðum sameiningum, að því er virðist vegna andstöðu starfsfólks og stjórnenda viðkomandi stofnana. Má þar nefna sameiningu Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík annars vegar og Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri hins vegar. Þá var fallið frá fyrirhugaðri sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst vegna afstöðu háskólaráðs þess fyrrnefnda.  

Ríkisendurskoðun áréttar í þessu samhengi mikilvægi vandaðs undirbúnings og skýrs forystuhlutverks ráðuneyta við innleiðingu breytinga á borð við sameiningu stofnana. Mikilvægt er að ráðuneyti undirbúi vel áform um sameiningar stofnana, sinni forystuhlutverki sínu af einurð og vinni að því í samráði við forstöðumenn að skapa samstöðu um breytingar. Þá er mikilvægt að miðla upplýsingum til starfsfólks og annarra hagaðila. Í þessu sambandi hefur fjármála- og efnahagsráðuneyti samið og gefið út leiðbeiningar fyrir forstöðumenn sem er ætlað að hafa til hliðsjónar til að tryggja árangursríkt og skilvirkt sameiningarferli stofnana.