Orkubú Vestfjarða Ohf. Starfshættir stjórnar

13.10.2016

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við að stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. hafi veitt fráfarandi forstjóra félagsins (orkubússtjóra) námsleyfi á launum eftir 37 ára starf án þess að nýta sér nokkurn tíma heimild til námsleyfis. Eðlilegt er samt að um slík leyfi gildi fastmótaðar reglur, m.a. um lengd þeirra. Að mati Ríkisendurskoðunar var starfsháttum stjórnar Orkubúsins á hinn bóginn um margt ábótavant þegar nýr orkubússtjóri var ráðinn vorið 2016.

Orkubú Vestfjarða Ohf. Starfshættir stjórnar (pdf)

Mynd með færslu