Yfirlit um ársreikninga sókna vegna ársins 2015

08.11.2016

Ríkisendurskoðun hefur haft eftirlit með ársreikningum sókna frá og með árinu 1997. Eftirlit stofnunarinnar felst fyrst og fremst í því að kanna hvort þeir séu tölulega réttir. Auk þessa eru ársreikningar sókna skráðir í gagnagrunn til að auðvelda eftirlit með skilum og aðra athugun á þeim.

Samræmt reikningsform fyrir sóknir var samþykkt af Kirkjuráði á árinu 2004 og hefur það verið notað síðan.

Í árslok 2015 voru 270 starfandi sóknir í 9 prófastsdæmum sem skila eiga ársreikningum til Ríkisendurskoðunar. Í byrjun október 2016 höfðu Ríkisendurskoðun borist ársreikningar frá 248 sóknum vegna ársins 2015. Ársreikningum 22 sókna hafði ekki verið skilað.

Yfirlit um ársreikninga sókna vegna ársins 2015 (pdf)

Mynd með færslu