Eftirfylgni: Lánasjóður íslenskra námsmanna. Lánshæfi náms og þróun útlána

26.09.2014

Í þessari úttekt er fylgt eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar Lánasjóður íslenskra námsmanna - Lánshæfi náms og þróun útlána (júní 2011). Leitast var við að meta hvort og þá hvernig mennta- og menningarmálaráðuneyti hefði brugðist við þremur ábendingum sem beint var til þess. Jafnframt var leitast við að meta hvort og þá hvernig Lánasjóður íslenskra námsmanna hefði brugðist við fimm ábendingum sem beint var til hans.

Eftirfylgni: Lánasjóður íslenskra námsmanna. Lánshæfi náms og þróun útlána (pdf)

Mynd með færslu