Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2013

29.10.2014

Ríkisendurskoðun hefur haft eftirlit með ársreikningum sókna frá og með árinu 1997. Eftirlit stofnunarinnar felst fyrst og fremst í því að kanna hvort þeir séu tölulega réttir. Auk þessa eru ársreikningar sókna skráðir í gagnagrunn til að auðvelda eftirlit með skilum og aðra athugun á þeim.

Samræmt reikningsform fyrir sóknir var samþykkt af Kirkjuráði á árinu 2004 og hefur það verið í gildi síðan.

Í árslok 2013 voru 271 sóknir starfandi. Í byrjun október 2014 höfðu Ríkisendurskoðun borist ársreikningar frá 219 sóknum vegna ársins 2013. Ársreikningum 52 sókna hafði ekki verið skilað.

Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2013 (pdf)

Mynd með færslu