Endurskoðun ríkisreiknings 2012

15.10.2013

Á árinu 2012 námu útgjöld ríkissjóðs 561,7 ma.kr. en tekjur 525,9 ma.kr. Tekjuhalli ríkissjóðs nam því 35,8 ma.kr. en fjárlög og fjáraukalög gerðu ráð fyrir að tekjuhallinn yrði 25,8 ma.kr. Bókfærðar eignir ríkissjóðs námu 1.113,2 ma. kr. í árslok 2012 og lækkuðu lítillega á milli ára.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.952,3 ma.kr. í árslok og jukust um 36,6 ma.kr. milli ára. Þar af jukust lífeyrisskuldbindingar um tæpa 15,5 ma.kr. Eigið fé í árslok 2012 var neikvætt um 839,2 ma.kr. samanborið við 774,1 ma.kr. neikvæða stöðu í árslok 2011.

Endurskoðun ríkisreiknings 2012 (pdf)

Mynd með færslu