Ábending frá Ríkisendurskoðun: Þjónustusamningar við öldrunarheimili

30.05.2013

Árið 2011 gerði Ríkisendurskoðun úttekt á skuldbindandi samningum velferðarráðuneytis. Í ljós kom að þrátt fyrir að öldrunarheimili væru fjölmörg hafði ráðuneytið aðeins gert þjónustusamninga við örfá þeirra. Sumir þeirra voru auk þess útrunnir og höfðu ekki verið endurnýjaðir þótt enn væri greitt samkvæmt þeim. Að sögn ráðuneytisins var unnið að umbótum í þessu efni.

Í ársbyrjun 2013 ákvað Ríkisendurskoðun að fylgja málinu eftir og gera úttekt á stöðu þjónustusamninga ríkisins við öldrunarheimili.

Ábending frá Ríkisendurskoðun: Þjónustusamningar við öldrunarheimili (pdf)

Mynd með færslu