Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2012

18.11.2013

Ríkisendurskoðun hefur haft eftirlit með ársreikningum sókna frá og með árinu 1997. Eftirlit stofnunarinnar felst fyrst og fremst í því að kanna hvort þeir séu tölulega réttir. Auk þessa eru ársreikningar sókna skráðir í gagnagrunn til að auðvelda eftirlit með skilum og aðra athugun á þeim.

Samræmt reikningsform fyrir sóknir var samþykkt af Kirkjuráði á árinu 2004 og hefur það verið í gildi síðan.

Í árslok 2012 voru 272 sóknir starfandi. Í byrjun nóvember 2013 höfðu Ríkisendurskoðun borist ársreikningar frá 241 sóknum vegna ársins 2012. Ársreikningum 31 sókna hafði ekki verið skilað.

Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2012 (pdf)

Mynd með færslu