22.11.2012
Í skýrslu þessari birtir Ríkisendurskoðun niðurstöður endurskoðunar á ríkisreikningi fyrir árið 2011. Endurskoðað var í samræmi við lög um stofnunina og góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt henni ber stofnuninni að fara eftir settum siðareglum og skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ríkisreikningur sé án verulegra annmarka.