Framkvæmd fjárlaga janúar–júní 2012

08.11.2012

Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir framkvæmd fjárlaga á fyrri helmingi ársins 2012 og horfum til ársloka. Fjallað er um heildarfrávik í tekjum og gjöldum ríkissjóðs á tímabilinu, áætlanir um afkomu ríkissjóðs til áramóta, stöðu fjárlagaliða sem mest víkja frá fjárheimildum, auk þess sem vikið er að öðrum atriðum eftir því sem tilefni þykir til. Meðal annars er fjallað um frumvarp til fjáraukalaga 2012 og þær breytingar og viðbætur sem þar eru lagðar til miðað við fjárlög ársins.

Framkvæmd fjárlaga janúar–júní 2012 (pdf)

Mynd með færslu